Fasteignasalan Hvammur
466-1600Skarðshlíð 29 íbúð 301 - Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð, efstu í austur enda - stærð 90,6 m²Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús, flísar á gólfi og snyrtileg hvít sprautulökkuð innrétting með nýlegri bekkplötu og flísum milli skápa. AEG ofn og helluborð.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Í stofu er ljóst plast parket á gólfi og úr stofunni er hurð út á steyptar suður svalir með svalalokunarkerfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með ljósu plast parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. Tengi eru inn á baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni, önnur innan íbúðar með hillum og hin er í kjallaranum, með lökkuðu gólfi og hillum.
Annað- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Stórar suður svalir með svalalokun
- Búið er að endurnýja rafmagnstengla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.