Borgir fasteignasala kynnir eignina Eyjabakki 6, 109 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-02, fastanúmer 204-7317 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Eyjabakki 6 er skráð sem 3-4ja herbergja íbúð. Birt stærð 110.2 fm.
Eignin er staðstt í enda sem snýr í suð-vestur á 2.hæð með 24,8 fm bílskúr og 7,1 fm geymslu.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór, lgf, í síma 6905123,tölvupóstur bjarklind@borgir.is.Rúmgóð endurýjuð íbúð í BreiðholtiHjónaherbergi með nýlegum tvöföldum skáp.
Búið er að gera
barnaherbergin tvö að einu stóru en auðvelt að breyta aftur.
Eldhús/stofa í opnu björtu rými. Nýleg innrétting í eldhúsi með innfeldum vask, helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél,veggháf og kvartstein á borðum.
Svalir snúa í suð-vestur. Fallegt útsýni yfir Elliðaárdalinn og í átt að Esju.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðkar og með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: í kjallara
Bílskúr: Góður endabílskúr með opnalegum glugga á hliðinni, upphitaður með köldu vatni. Fyrir framan bílskúrinn er bílastæði.
Sameiginleg vagna-og hjólageymsla er staðsett í sameign í kjallara hússins.
- Árið 2023 var skipt um gler og gluggalista eftir þörfum í húsinu og tréverk málað. Ný gler í stofugluggum norður.
- Árið 2022 brotinn niður veggur í eldhúsi og ný eldhúsinnrétting og tæki sett upp. Parket sett á alrými og opinn fataskápur á forstofugagni. Dregið nýtt rafmagn í alrými, eldhús og svalir skipt um tengla og rofa í öllum herbergjum.
- Árið 2019 var skipt um fataskáp og gólfefni í svegnherbergjunum.
- Árið 2015-2016 var skipt um alla ofna í íbúðinni fyrir utan einn inná baðherberginu.
- Árið 2014-2015 var þak yfirfarið og skipt um þakrennur. Skipt um gler í minna herbergi.
Umhverfi: Bílastæðin eru staðsett fyrir framan blokkina en leiksvæðið með rólum og grasflöt er staðsett fyrir miðju hússins. Staðsettning eignarinnar er góð og er því stutt í sem dæmi Mjódd þar sem öll helsta þjónusta er. Stutt í strætó, stutt í gönguleiðir sem dæmi Elliðaárdalinn, stutt í skóla,leikskóla og Breiðholtslaug.