Fasteignaleitin
Skráð 11. okt. 2026

Digranesheiði 41

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
192.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
751.946 kr./m2
Fasteignamat
101.700.000 kr.
Brunabótamat
83.900.000 kr.
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2059704
Landnúmer
114180
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (eftir þörfum).
Þak
Endurnýjað að hluta, þ.m.t. á viðbyggingu 2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Afgirt verönd - suður
Upphitun
Hitaveita/Danfoss/Gólfhiti að hluta
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Eignin er skráð 161,8 fm hjá HMS og er búið að endurmæla húsið og leggja inn uppfærða reyndarteikningu og skráningartöflu og er það í ferli. Einnig er verið að uppfæra eignarskiptayfirlýsingu og er það seljenda að klára framangreint. Lekur inn í kjallarageymsluna í miklum vatnsveðrum.
Kvöð / kvaðir
Sjá þinglýsta lóðarleigusamninga.
**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **

RE/MAX ásamt Þórdísi Björk og Salvöru Þóru Davíðsdætrum löggiltum fasteignasölum kynna:
( Þórdís Björk: 862-1914 / thordis@remax.is  |  Salvör Þóra: 844-1421 / salvor@remax.is)  

Sérlega fallega og mikið endurnýjaða neðri sérhæð í tvíbýli með bílskúr og sérinngangi í Suðurhlíðum Kópavogs. Eignin er alls 192,7 fm** á einni hæð með góðum bílskúr, stóru og björtu alrými, notalegri garðstofu, góðum suðurgarði með skjólveggjum og er staðsett í rólegu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Skóli og leikskóli eru í göngufæri og fjölbreytt náttúrsvæði við Víghól með leikvelli, ofl.

** ATH ** Gildandi fasteignamat miðast við að stærð eignar sé 161,8 fm sem er núverandi skráning hjá HMS en ekki raun fermetra eignar eftir nýja mælingu sem eru 192,7 fm.  Uppfærðar teikningar og ný eignaskiptayfirlýsing liggja inni til samþykktar hjá byggingarfullrúa. Þegar samþykki liggur fyrir hækkar fasteignamat eignar í samræmi við aukna heildarfermetra, aukning um yfir 30 fm). -- Sjá hér nýjar teikningar hér

*  VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

*  SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
*  SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna


Helstu kostir eignarinnar
- Rúmgóð og fjölskylduvæn eign.
- Björt og góð garðstofa.
- Vel staðsett í hverfinu nálægt skóla, leikskóla, góðu leiksvæði og allri helstu þjónustu.
- Góður og sólríkur garður með notalegu útisvæði.
- Bjart og rúmgott alrými með stórum gluggum.
- Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp.
- Tvö rúmgóð barnaherbergi og eitt minna barnaherbergi/skrifstofa.
- Tvö góð baðherbergi.
- Góður 26,9 fm bílskúr með sér inngönguhurð. 
- Snjóbræðsla undir hellulögn (verönd og gangstétt).
- Gróinn og skjólgóður suðurgarður
---------------------------------------------
Viðhald og endurbætur

1987 - Garðstofu bætt við af fyrri eigendum.
2014 - Eldhús endurnýjað og gólfhiti lagður í aðalrými og sett harðparket, þ.e. í eldhús, stofu og borðstofu. Einnig var skipt um glugga og gler í tveimur svefnherbergjum.
2015 - 2016 - Gangstétt og verönd við húsið hellulögð og snjóbræðsla sett þar undir. Einnig sett upp girðing og skjólveggur fyrir framan hús.
2020 - Þak á viðbyggingu endurnýjað sem og settur nýr panell í loft og ljós. Skipt um þakrennur á öllu húsinu.
2022 - Bæði baðherbergin tekin í gegn, settur gólfhiti og terrazzo flísar á gólfin.
2024 - Skipt um glugga í þriðja svefnherberginu og gler og lista í stóra stofuglugganum.
2025 - Sérsaumaðar Luxaflex gardínur í alrými og 3 svefnherbergjum.

-------------------
Nánari lýsing
 
Húsið er tvíbýlishús á tveimur hæðum byggt árið 1966 úr steinsteypu á hefðbundinn hátt þess tíma, einangrað að innan, upptekið loft í stofu á 1. hæð og upptekið þak yfir 2. hæð. Garðstofu var bætt við árið 1987. Eignin er skráð í heild sinni 192,7 fm** sem skiptist í íbúðarhluta 145,3fm geymsla 20,5 fm og bílskúr 26,9 fm. Eignin er tekin í gegn að mestu leiti. Gólfefni, hurðir, baðherbergi, eldhús, skápar og innréttingar endurnýjað.

Forstofa: Flísalögð með fatahengi.
Aðalrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru saman í rúmgóðu, björtu og notalegu aðalrými með aukinni lofthæð. Þaðan er farið út í góða garðstofu, búr og bakgarðinn.
Eldhús: Dökk og falleg innrétting með fallegri Corian borðplötu með samfelldum vaski, stálburstuðum háf, bakaraofni í vinnuhæð og góðu skápa- og borðplássi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Garðstofa: Notalega og rúmgóð upphituð garðstofa með náttúruflísum á gólfi er út frá alrými og með aðgengi út í huggulegan garð.
Þvottahús og Búr: Inn af eldhúsi er gott þvottahús og þar inn af er gott búr með hillum. Úr þvottahúsi er farið út í bakgarð 
Gestasnyrting: Endurnýjað 2022 með upphengdu salerni, gólfhita, hvítri innréttingu, hvítum flísum á veggjum að hluta og terrazzo flísar á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað 2022 með hvítri innréttingu, hvítum flísum á veggjum að hluta, terrazzo flisar á gólfi, walk-in sturtu, sturtugleri og glugga með opnanlegu fagi. Það er stammi fyrir salerni og því einfalt að bæta við auka salerni.
Svefnhergin: Fjögur svefnherbergi eru í eigninni. Þar af eru þrjú þeirra rúmgóð með nýlegum Luxaflex gardínum og eitt með góðum fataskápum. Fjórða herbergið er notað sem skrifstofa.
Geymsla: Er í kjallara merkt 0001 er skráð 20,5 fm og er innangeng af gangi íbúðar.
Gólfefni: Harðparket og flísar
Innihurðar: Yfirfelldar hvítar innihurðar.

Garður: Sameiginlegur skjólgóður garður með girðingu, skjólveggjum og notalegu útisvæði. Snjóbræðsla er undir hellulögn fyrir framan húsið.
Bílskúr: Er skráður 26,9 fm og er með rafmagni, góðri innkeyrslu og bílastæði við hús

Staðsetning
Eignin er vel staðsett í friðsælu, eftirsóttu og grónu hverfi í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, íþróttaiðkun,  útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir auk góðra samgangna. Svæðið sameinar borgarumhverfi og fallega náttúru ásamt útivistarsvæði í næsta nágrenni sem er Kópavogsdalurinn þar sem eru fallegar gönguleiðir. 
Um er að ræða einstaklega skemmtilega og fjölskylduvæna eign með bílskúr, sér inngangi og nálægð við góð útisvæði.

Allar nánari upplýsingar veita:
     Þórdís Björk Davíðsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 862-1914 eða á thordis@remax.is
     Salvör Þóra Davíðsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á salvor@remax.is

-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/06/201431.850.000 kr.37.700.000 kr.161.8 m2233.003 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1967
26.9 m2
Fasteignanúmer
2059704
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.450.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mávabraut 8B
Bílskúr
Skoða eignina Mávabraut 8B
Mávabraut 8B
230 Reykjanesbær
176,6 m2
Raðhús
514
503 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 6
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Drekavellir 6
Drekavellir 6
221 Hafnarfjörður
189,3 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
514
644 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 26
Skoða eignina Asparlaut 26
Asparlaut 26
230 Reykjanesbær
190,9 m2
Fjölbýlishús
523
547 þ.kr./m2
104.500.000 kr.
Skoða eignina Jötundalur 4 - Íb. 101
Jötundalur 4 - Íb. 101
260 Reykjanesbær
108,7 m2
Fjölbýlishús
312
689 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin