Fasteignaleitin
Skráð 28. ágúst 2026

Stórholt 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
121 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
108.800.000 kr.
Fermetraverð
899.174 kr./m2
Fasteignamat
86.600.000 kr.
Brunabótamat
58.350.000 kr.
Mynd af Helen Sigurðardóttir
Helen Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1951
Jarðhæð af 3
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2011695
Landnúmer
103282
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
óvitað / upprunalegt
Raflagnir
endurnýjað
Frárennslislagnir
endurnýjað að mestum hluta / upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað/ tvöfalt gler
Þak
Upprunalegt / endurnýjað þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita. Ofnar á efri hæð og gólfhiti í kjallara.
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
frá fyrri eiganda : Það er hiti í öllu gólfum niðri og hiti ígólf eldhúsi gangi og wc 
Wc niðurfall og neðsti hluti af vaskaniðurföll "nýtt"ofnalagnirað stofnun upp "nýtt" og allt rafmagn + tafla.
Kv.Sven 
Gallar
frá seljanda : Bleyta kom upp í geymslu/þvottahúsi í kjallara í eigu nágranna á efri hæð. Í kjölfarið var baðherbergið á fyrstu hæð skoða af pípar og kítti og fúgur skoðaðar. Fúgur litu vel út og kítti var endurnýjað. Væta er nú nánast alfarið farin en nágranni segir að af og til verði hann var við smávegis bleytu. Við höfum ráðlagt nágrannanum að kanna hvort tryggingafélagið hans geti kannað orsökina, enda er enginn sjáanlegur leki í okkar íbúð, lagnir endurnýjaðar og baðherbergi verið yfirfarið.

 
Mikið endurnýjuð, 5 herbergja íbúð sem er skipt í tvær íbúðir í dag.  Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur við Stórholt 17, Þingholtinu.
Góðar leigutekjur, 3ja herbergja íbúð á efri hæð og 2ja herbergja íbúð á jarðhæð. Vel hægt að opna á milli hæða og gera að einni íbúð.

* Útleigueining með góðum tekjum.
* Endurnýjuð eldhús, baðherbergi og gólfefni.
* Bílskúrsréttur og bílastæði við húsið.
* Húsið hefur fengið mikla endurnýjun að innan og utan. 


Viðhald á húsinu síðastliðin ár tiltelur ma. :
2007 voru frárennslislagnir endurnýjað frá húsi út í götu, og settur brunnur.
2007-2011 voru eldhús og baðherbergi endurnýjuð og hluti gólfefna.
2010-2011 voru heita- og kaldavatnslagnir endurnýjaðar og hiti settur í gólf.
2014 var húsið múrviðgert og steinað ásamt lagfæring á þakkanti, þakrennur endurnýjaðar, gluggar yfirfarnir og endurnýjaðir eftir þörf.
2026 var þakjárn endurnýjað. Sperrur athugaðar og metnar í góðu ástandi. Gluggar málaðir að utan.

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. HMS er 121,00 m2. Þar af er 68,8 fm íbúð á 1.hæð, 49,4 fm innréttað sem íbúð í kjallara og 2,8 fm geymsla.

Íbúð á 1. hæð skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi og geymsluskáp.
Það er snjóbræðsla í tröppunum.
Hol er flísalagt með geymsluskáp, þar sem áður var gengið niður í kjallara. Hægt að opna aftur.
Stofa er með parket á gólfi.
Eldhús er með gólfhita og flísum á gólfi, L-laga innrétting með helluborði, viftu, bakarofn ásamt borðkrók og uppþvottavél.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og var áður borðstofa, auðvelt að opna aftur á milli.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, sturtu, upphengdu wc, innréttingu og tengi fyrir þvottavél.

Íbúð á jarðhæð skiptist í hol, stofu/ eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymsluskáp.
Hol er flísalagt með geymsluskáp.
Stofa / eldhús er í opnu rými með flísum á gólfi. Innrétting með tækjum.
Svefnherbergi er flísalagt með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, upphengdu wc, innréttingu, tengi fyrir þvottavél og baðkari með sturtu.
Gólfhiti er í allri íbúðinni.

Sérgeymsla er í sameign undir stiga, skráð 2,8 m2.
Bílskúrsréttur fylgir þessari eign samkv. eignaskiptayfirlýsingu, ásamt bílastæði þar við. 

Afar vel staðsetta eign miðsvæðis í Reykjavík í vinsælu hverfi, afar stutt að sækja ýmsa verslun, menningu, skóla, þjónustu osfrv. Fallegar gönguleiðir í Öskjudalshlíð sem og Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/07/202049.750.000 kr.63.000.000 kr.121 m2520.661 kr.
11/10/201734.250.000 kr.59.300.000 kr.121 m2490.082 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (7)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin V3 íb 501
Bílastæði
Opið hús:13. sept. kl 13:00-14:00
Vesturvin V3 íb 501
101 Reykjavík
141 m2
Fjölbýlishús
312
1489 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 - Heklureitur íb 503
Bílastæði
Laugavegur 168 - Heklureitur íb 503
105 Reykjavík
112.6 m2
Fjölbýlishús
423
1216 þ.kr./m2
136.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 1- íbúð 601 Þaksvalir
Bílastæði
Efsta hæð
Dugguvogur 1- íbúð 601 Þaksvalir
104 Reykjavík
101.6 m2
Fjölbýlishús
312
1131 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 2
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 2
Valshlíð 2
102 Reykjavík
119.3 m2
Fjölbýlishús
514
921 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin