** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt sumarhús ásamt gestahúsi á 23.000 m2 eignarlóð á grónum stað við Neðra-Apavatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Eignin er kölluð Hléskógar. Lóðin er skógi vaxin útivistarparadís og liggur að Apavatni sunnanverðu. Eigninni fylgir jafnframt 1/9 af 26,5 hektara lóð í óskiptri sameign (F2344955). Eigninni fylgir því samtals land sem samsvarar ríflega 52.000 m², þar af eru 23.000 m² séreignarlóð og um 29.000 m² hlutdeild í óskiptu landi.Eignin er samtals skráð 112,8 m2, þar af sumarhús 83,8 m2 og gestahús 29 m2. Sumarhúsið skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Gestahús skiptist í tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sér inngönguhurð er í bæði svefnherbergi. Varmadæla er í alrými aðalhúss til upphitunar auk rafmagnsofna í flestum rýmum. Hitakútur fyrir neysluvatn er bæði í aðalhúsi og gestahúsi. Sér kaldavatnsborhola fylgir eigninni. Góð timburverönd er við bæði hús. Á lóðinni standur geymsluskúr og reykhús. Fallegar gönguleiðir eru á lóðinni og við vatnið er lítil bryggja, aðeins nokkrum skrefum frá aðalhúsi. Frábær staðsetning, stutt frá mörgum af helstu náttúruperlum Suðurlands auk verslunar og þjónustu á Laugarvatni. Að lóðinni liggur góður malarvegur frá Laugarvatnsvegi. Lokað símahlið er til að komast inn á svæðið. Veiði í vatninu fylgir sem og í Vatnsholtslæk. Innbú utan persónulegra muna getur fylgt með í kaupunum. Eignin getur verið laus við kaupsamning.Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda: Vatnslagnir endurnýjaðar 2019. Pallur byggður 2020. Ný varmadæla 2020. Hús klætt að utan 2020. Skipt um alla glugga 2020. Nýtt eldhús og tæki 2020. Nýtt parket 2020. Bryggja byggð 2021. Reykhús byggt 2022. Ný rotþró fyrir aðalhús 2024. Ný rotþró fyrir gestahús 2024. Gestahús byggt 2023-2025.** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent **Nánari lýsing:- Aðalhús
Forstofa er með parketi á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Stofa/borðstofa er stór og björt, opin við eldhús, með parketi á gólfi og arni. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri U-laga hvítri innréttingu með bakaraofni, helluborði, háfi og uppþvottavél. Ísskápur stendur við hlið innréttingar.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu með handlaug, gólfsalerni, sturtuklefa og handklæðaofni. Opnanlegir gluggi er í rýminu.
- GestahúsSvefnherbergi 1 er rúmgott með parketi á gólfi. Sér inngangur er í rýmið.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi. Sér inngangur er í rýmið.
Baðherbergi er milli svefnherbergja og er innangengt í bæði herbergin. Parket er á gólfi, innrétting með handlaug, upphengt salerni og sturtuklefi. Þvottavél og opnanlegur gluggi eru í rýminu.
Geymsluskúr og reykhús standa á lóð við sumarhúsið. Bryggja er við vatnið, stutt frá aðalhúsi.
Verð kr. 92.900.000,-