Rúmgóð og björt 3ja herberbergja útsýnisíbúð með sér inngangi á 3. hæð (efstu) með rúmgóðum svölum til vesturs/norðvesturs í fallegu fjölbýlishúsi við Kríuás 19 í Hafnarfirði. Mögulegt er að færa eldhúsið og gera aukaherbergi í eigninni. Einstaklega glæsilegt útsýni er úr eigninni. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Nýjar innihurðir og útidyrahurð. Nýtt parket er á íbúðinni. Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð ásamt vagnageymslu og hjólageymslu. Íbúðin er í útleigu í dag. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 97,2 fm. og þar af er geymsla 2,9 fm.
Nánari lýsing:Forstofa rúmgóð með innbyggðum skáp og flísum á gólfi.
Gangur með parket á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Mikið útsýni er úr stofunni. Útgengt er út á svalir úr stofunni.
Eldhús er opið að hluta við stofu með flísum á gólfi. Snyrtileg eldhúsinnrétting, helluborð, með tengi fyrir uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, flísar á milli skápa og eldhúskrókur með fallegum eldhúsglugga. Mögulegt er að færa eldhúsið og gera auka herbergi.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi með skáp pg parket á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, snyrtileg innrétting, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi mjög rúmgott, vaskur og auðvelt að nýta hluta þess sem geymslu. Flísar á gólfi.
Geymsla íbúðar er staðsett á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg og er staðsett á jarðhæð.
Glæsilegt útsýni er úr eigninni út Reykjanesið, Keili, Akranesi, Snæfellsjökli, Esjunni, út á sundin og víðar og er húsið er staðsett á jaðarlóð.
Lóðin er afar snyrtileg með tyrfðum flötum á baklóð og malbikuðum stæðum fyrir framan hús. Í sumar hafa staðið yfir viðhaldsframkvæmdir við húsið sem nú eru á lokametrunum. Ráðgjafi var fenginn til að meta ástand hússins og farið var í þær framkvæmdir sem hann mælti með. Unnið hefur verið að smávægilegum múrviðgerðum, skipt um þá glugga sem voru komnir á tíma, og húsið hefur verið sílanborið og málað. Framkvæmdirnar eru nú við það að ljúka og seljandi greiðir kostnaðinn við þær að fullu.
Frábær staðsetning í næsta nágrenni við Áslandsskóla ásamt tveimur leikskólum (Tjarnarás og Stekkjarás). Stutt í útivistarparadís, sem liggur við bakgarðinn, með glæsilegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Hvaleyrarvatni, Ástjörn og víðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is