SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝLEG 3. HERB. ÍBÚÐ* GÓÐAR SUÐURSVALIR* *SÉR BÍLASTÆÐI* *FRÁBÆR STAÐSETNING*Vönduð 3ja herb. íbúð á frábærum stað í Villamartin, ca. 50 mín. akstur frá Alicante flugvelli. 5 mín. gangur á laugardagsmarkaðinn, 20 mín. göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Örstutt í Los Dolses þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi.
Einstakt tækifæri til að eignast nýlega og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
Allar upplýsingar veitir Berta Hawkins, lögg. fasteignasali, í síma 0034 615 112 869 eða berta@spanareignir.isNánari lýsing:Um er að ræða lyftuhús á 4 hæðum með stórum og glæsilegum sameiginlegum sundlaugargarði. Íbúðin er 94 fm á 2. hæð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/borðstofu og fallegu eldhúsi með hvítri háglans innréttingu. Rúmgóðar suðursvalir með útsýni yfir sundlaugargarðinn. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Góð sameign og sér bílastæði á lóð.
Húsið er byggt 2023 og allt er sem nýtt.Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýlega og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Verð:
280.000 Evrur + kostn. (ISK. 40.600.000 gengi 1Evra/145 ISK)Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isEitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Eiginleikar: nýleg eign, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, sér bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,