Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

Stekkjarhóll

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
268.5 m2
5 Herb.
Verð
179.000.000 kr.
Fermetraverð
666.667 kr./m2
Brunabótamat
140.750.000 kr.
Miklaborg
http://www.miklaborg.is
Byggt 2006
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Á einni hæð
Fasteignanúmer
2297787
Húsgerð
Einbýlishús

Miklaborg kynnir:

***Seljandi skoðar skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu***

Virkilega fallegt og sérlega vel staðsett 270 fm einbýlishús á einni hæð með stórbrotnu útsýni yfir Meðalfellsvatn og út á Hvalfjörðinn. Húsið stendur hátt í landi og langt er í næsta hús.

- Um er að ræða einbýlishús og því lánshæft fyrir íbúðarlán -


Eignin skiptist í 192 fm einbýlishús á einni hæð, 47,5 fm tvöfaldan bílskúr sem er innangent inn í húsið og fullbúið 29 fm aukahús með rafmagni og hita eða alls 270 fm.

NÁNARI LÝSING: Keyrt er upp einkaveg að húsinu. Stórt plan er fyrir framan húsið og steypt upphitað plan fyrir framan bílskúr sem rúmar tvær bifreiðar. Komið inn í anddyri með góðum tvöföldum forstofuskáp og gestasalerni. Úr anddyri er gengið inn í rúmgott sjónvarpshol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðarhúsins. Eldhús er með fallegri innréttingu, með  mjög stórri eyju þar sem gashelluborð er ásamt ásettu morgunverðarborði. Góðar útdraganlegar hirslur eru beggja vegna eyjunnar.  Tvöfaldur ísskápur og háfur yfir gaseldavélinni. Eldhús er opið inn í bjarta og rúmgóða borðstofu og stofu með mikilli lofthæð. Kamína er í opna ríminu, ásamt gólfsíðum gluggum. Stórbrotið útsýni er úr stofum og eldhúsi. Útgengt um stóra rennihurð á góða verönd með heitum potti. Hjónaherbergið er rúmgott  með gólfsíðum gluggum og inn af því stórt fataherbergi með rennihurð. Rúmgott baðherbergi með sturtu, fallegri innréttingu og útgengt út í heita pottinn. Þrjú barnaherbergi, öll með fataskáp og þar af eitt sérlega rúmgott. Þvottahús er rúmgott með góðri innréttingu og er gengið inn í stóran bílskúr í gegnum þvottahúsið. Bílskúr er tvíbreiður og með góðri lofthæð og með rafmagnsinnkeyrsluhurð. Geymsluloft er yfir hluta af bílskúr.


Á lóðinni er 29 fm frístandandi hús með rafmagni og hita ásamt innkeyrsluhurð. Húsið stendur á tveimur lóðum og eru þær alls um7.000 fm. Engin  skipulögð byggð er í kringum lóðirnar, en húsið stendur í landi jarðarinnar Grjóteyrar. (  Búið er að gróðursetja heilmikið á lóðinni) 


GÓLFEFNI: Flísar eru á öllum gólfum nema svefnherbergjum en þau eru öll parketlögð. með fallegu viðarparketi.


Gólfhiti er í öllu húsinu. Hitaveita og ljósleiðari. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er í bílskúr.

 

Sjón er sögu ríkari


GÓLFEFNI: Flísar eru á öllum gólfum nema svefnherbergjum en þau eru parketlögð með fallegu viðarparketi.


Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignsali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laxatunga 104
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Laxatunga 104
Laxatunga 104
270 Mosfellsbær
167,1 m2
Raðhús
413
Fasteignamat 113.050.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Úugata 40
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 40
Úugata 40
270 Mosfellsbær
239,2 m2
Raðhús
624
623 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 5
Bílskúr
Skoða eignina Suðurgata 5
Suðurgata 5
230 Reykjanesbær
289,2 m2
Einbýlishús
8
Fasteignamat 101.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Smáratún 14
Bílskúr
Skoða eignina Smáratún 14
Smáratún 14
230 Reykjanesbær
242,5 m2
Einbýlishús
725
478 þ.kr./m2
115.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin