Fasteignaleitin
Skráð 6. júlí 2026

Spánn Torrevijea Spánn

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
80 m2
1 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
27.800.000 kr.
Fermetraverð
347.500 kr./m2
Mynd af Viðar Marinósson
Viðar Marinósson
Löggiltur fasteignasali
Jarðhæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
1010605
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
LIND – Spánarfasteignir kynnir í sölu
Calle Francisco Soribella López 29B, 03183 Torrevieja, Spánn
Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð, í eigu Íslendings, á vinsælu svæði í Torrevieja á Costa Blanca. Um er að ræða bjarta og notalega eign á frábærum stað þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri.
Húsfélagið sér um allt viðhald að utan, þrif á sundlaug og sameiginlegum garði og flr.
 Afhending er við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir: Ísak V. Jóhannssons í sími: 822-5588 isak@fastlind.is
Eignin skiptist í:
Bjarta stofu og eldhús í opnu og rúmgóðu alrými.
Tvö góð svefnherbergi með fataskápum.
Eitt snyrtilegt baðherbergi.
Tvær verandir, annars vegar fyrir framan íbúðina og hins vegar aftan við hana, sem tryggja sól eða skugga eftir óskum allan daginn.
Öll húsgögn og heimilistæki geta fylgt með kaupunum, sem gerir eignina einstaklega hentuga sem sumarhús, fjárfestingu eða til útleigu.
Sérmerkt bílastæði er á lóðinni og sameiginleg sundlaug er í örfárra skrefa fjarlægð frá íbúðinni.
Staðsetning
Íbúðin er staðsett á vinsælu og rólegu svæði í Torrevieja þar sem auðvelt er að njóta spænsks lífsstíls. Í göngufæri er fjölbreytt þjónusta, matvöruverslanir, kaffihús og veitingastaðir ásamt verslunarmiðstöðinni Habaneras, sem býður upp á fjölbreytt úrval verslana, veitingastaða og afþreyingar.
Skammt frá er einnig hinn vinsæli Parque de las Naciones, fallegur almenningsgarður með gönguleiðum og gróðri. Strendurnar við Torrevieja eru í stuttri aksturs- eða hjólafjarlægð og þar má njóta kristaltærs sjávar, strandlífs og fjölbreyttra vatnaíþrótta.
Torrevieja nýtur yfir 300 sólardaga á ári og er þekkt fyrir milt loftslag, fallegar sandstrendur, saltvötn sín og öflugt þjónustustig allt árið um kring. Svæðið hentar jafnt til heilsárs búsetu sem og fyrir þá sem leita að frábærum orlofseignum við Miðjarðarhafið.
 Verð: €190.000 ( ISK miðað við gengi 1 evra = 145 ISK) auk kostnaðar við kaupin. Ekkert áhvílandi.
Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Nánari upplýsingar veita:
Ísak V. Jóhannsson og Viðar Marinósson
Sími: 822-5588
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (10)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Maríugata 1
Skoða eignina Maríugata 1
Maríugata 1
210 Garðabær
81.7 m2
Fjölbýlishús
312
978 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Diddi_vefur (39).jpg
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Mjóahlíð 10
105 Reykjavík
103 m2
Fjölbýlishús
413
873 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Mar de Cristal
Bílastæði
Efsta hæð
SPÁNAREIGNIR - Mar de Cristal
Spánn - Costa Blanca
134 m2
Fjölbýlishús
423
568 þ.kr./m2
76.100.000 kr.
Skoða eignina Eyravegur 34
Skoða eignina Eyravegur 34
Eyravegur 34
800 Selfoss
78.1 m2
Fjölbýlishús
413
679 þ.kr./m2
53.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin