Miklaborg kynnir: Vel skipulögð og björt 165,1 fm þriggja til fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum ásamt stæði í lokaðri bílageymslu í nýlegu og vönduðu lyftuhúsi í Vogabyggð í Reykjavík. Íbúðin er með sérsmíðuðum ítölskum innréttingum frá Gili Creation. Kvartssteinn er á borðum, gólfsíðir gluggar, gólfhiti, vandað vínilparket á gólfum og ítalskar flísar á votrýmum.
Tvennar svalir, þar af stórar þaksvalir til vesturs með heitum potti.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING:
Neðri hæð: Komið er inn í andyri með fatskápum. Á neðri hæð er svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi er með „walk-in“ sturtu og fallegri innréttingu. Þvottahús með innréttingu og skolvaski. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð.
Eldhús er með vönduðum innréttingum og eldhúseyju sem hægt er að sitja við. Útgengt er á 5,2 fm svalir til vesturs. Á neðri hæðinni er björt stofa sem hægt er að breyta í svefnherbergi og rúmgóð borðstofa.
Á efri hæð er sjónvarpshol með útgengi út á þaksvalir, hjónasvíta, fataherbergi með skápum og baðherbergi með „walk-in“ sturtu og fallegri innréttingu og þaðan er útgengi á 33,4 fm þaksvalir til vesturs með heitum potti.
Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílahúsi. Hleðslustöð fyrir rafbíla er í stæðinu.
Nánasta umhverfi: Stutt í verslun, þjónustu og almenna útivist. Góðar göngu- og hjólaleiðir eru að Elliðarárdal og meðfram sjó.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 22/07/2022 | 41.150.000 kr. | 124.900.000 kr. | 165.1 m2 | 756.511 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 166,2 | 134,6 | ||
105 | 148,4 | 119,9 | ||
810 | 166,7 | 104,9 | ||
105 | 101,2 | 101,9 | ||
105 | 105 | 99,8 | ||
105 | 80,9 | 80 |