Fasteignaleitin
Skráð 30. júlí 2026

Kjartansstaðir 9 hektarar

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-803
217 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
690.783 kr./m2
Fasteignamat
82.350.000 kr.
Brunabótamat
89.400.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1996
Garður
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2225156
Landnúmer
226017
Húsgerð
Jörð/Lóð
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
010
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Seljandi áskilur sér rétt til að undanskilja land frá sölu eignarinnar þannig að land sem fylgi sé um 1,5 hektari. Endanleg stærð, staðsetning og afmörkun hins selda lands liggur fyrir við kaupsamningsgerð og er háð samþykki viðeigandi yfirvalda og stofnana. 
Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan TORG kynna Kjartansstaði 2 í Flóahreppi, rúmgóða og einstaklega gróna sveitaeign með um 9 hektara landi, fjögurra svefnherbergja einbýlishúsi og innbyggðum 55,5 m² tvöföldum bílskúr.
Kjartansstaðir sameina næði og kyrrð sveitarinnar, spennandi land og þægileg nálægð við þjónustu á Selfossi. Eignin getur hentað vel fyrir fjölskyldu, hestafólk, ræktun, frístundabúskap eða kaupanda sem vill eign með fjölbreytta framtíðarmöguleika.
 
Húsið er alls 217 m², þar af er íbúðarhlutinn 161,5 m² og innbyggður tvöfaldur bílskúr 55,5 m². Húsið stendur í fallegu og skjólsælu umhverfi þar sem há tré skapa mikið næði og einstaka stemningu.
Heimreiðin liggur í gegnum gróðurinn að húsinu og umhverfis eignina eru stór útisvæði, sólpallur og heitur pottur.
 
Húsinu fylgir fallegt og gróið landsvæði og er heildarstærð landsins um 9 hektarar. Landstærðin skapar fjölbreytta möguleika fyrir hestahald, ræktun, útivist og aðra ferðatengda starfsemi.
Staðsetningin er frábær með tilliti til ferðatengdri starfsemi, stutt í alla helstu ferðamannaperlur og hefur góðan sýnileika.
Jafnframt kann að vera möguleiki á frekari uppbyggingu á landinu, svo sem skemmu, hesthúsi, gestahúsi, sumarhúsum eða öðrum aukabyggingum.  Slík uppbygging er þó háð gildandi skipulagi, byggingarheimildum og samþykki Flóahrepps og annarra viðeigandi yfirvalda.
 
Nánari lýsing;
Gengið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Þaðan er komið inn í stórt og bjart alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda hjarta heimilisins. Fjöldi glugga hleypir inn mikilli birtu og skapar fallega tengingu við gróið umhverfið.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og úr stofunni er gengið út á stóran sólpall með heitum potti.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt og er með vandaðri, hvítri sérsmíðaðri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og stórri eldunareyju. Við glugga er rúmgóður borðkrókur með útsýni yfir gróðurinn.
Svefnherbergin eru fjögur og öll rúmgóð. Hjónaherbergið er með fataherbergi og útgengi út á lóð. Eitt svefnherbergjanna er í dag nýtt sem skrifstofa.
Aðalbaðherbergið er mjög rúmgott og verið er að endurnýja það frá grunni. Gert er ráð fyrir walk-in sturtu, baðkari, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gestasalerni er inn af forstofu og er með salerni, handlaug og sturtu.
Þvottahúsið er rúmgott með innréttingu, góðu vinnuplássi og útgengi út í garð.
Innbyggður tvöfaldur bílskúr er 55,5 m² og býður upp á gott rými fyrir tvo bíla, geymslu, verkstæði eða aðra starfsemi. Innangengt er úr íbúðarhlutanum í bílskúrinn.
 
Eignin er tengd hitaveitu.

Kjartansstaðir 2 bjóða upp á sjaldgæfa samsetningu: rúmgott fjölskylduhús, stóran bílskúr, níu hektara land, hitaveitu, skjól og mikið næði – án þess að vera langt frá þjónustu og atvinnusvæði Selfoss.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/01/202144.683.000 kr.110.000.000 kr.999.5 m2110.055 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kvennagönguhólar 22
Kvennagönguhólar 22
805 Selfoss
Jörð/Lóð
Fasteignamat 3.200.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Selvogsbraut 45 LÓÐ
Selvogsbraut 45 LÓÐ
815 Þorlákshöfn
660.3 m2
Jörð/Lóð
98 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Bárugata 21
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Bárugata 21
Bárugata 21
815 Þorlákshöfn
214.3 m2
Einbýlishús
514
741 þ.kr./m2
158.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurbakki 7
Skoða eignina Suðurbakki 7
Suðurbakki 7
805 Selfoss
13,582 m2
Jörð/Lóð
1 þ.kr./m2
20.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin