Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi. Sér stæði í bílageymsluhúsi fylgir. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:Forstofa með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með span helluborði og eldavél, flísar á gólfi. Fallegt útsýni til norðurs.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á suður svalir.
Hjónaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, sturtu og upphengdu salerni.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu og vaski.
Geymsla er 8,9fm og er á jarðhæðinni ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Sér stæði í bílageymsluhúsi fylgir.Rúmgóð eign á góðum stað í Grafarholti. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóli og leikskóli í göngufæri. Einnig eru margar fallegar gönguleiðir í kring. Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit yfir eignina Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is