VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Dalsbrún 14, 810 Hveragerði.
Falleg íbúð í fjögurra íbúða raðhúsi á frábærum stað.
Eignin er samtals 99,0 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin telur forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Hellulagt bílaplan að framan og skjólgóður pallur að aftan með heitum & köldum potti.
Húsið er byggt árið 2016.Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Sjá staðsetningu hér:Lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Stofa: Eldhús og stofa eru saman í opnu og björtu rými. Frá stofu er útgengt á timburverönd með heitum og köldum potti.
Eldhús: Er opið inní stofu. Þar er innrétting með efri og neðri skápum, tveir bakarofnar í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir ísskáp.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf & gólf, upphengt wc, sturta, handklæðaofn og innrétting með handlaug.
Geymsla/þvottahús: Pláss fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð í góðri innréttingu. Lúga upp á geymsloft.
Svefnherbergin eru þrjú:Hjónaherbergi er með suðurglugga er snýr út í garð. Þar er fataskápur.
Svefnherbergi II gengið er í herbergið frá forstofunni. Gluggi til norðurs. Skráð sem geymsla á teikningur.
Svefnherbergi III er með stórum fataskáp, gluggi til norðurs.
Innfeld lýsing er í loftaplötum hússins.
Gólfhiti er í allri eigninni.Gólfefni íbúðar eru
flísar og
parket.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð. Stutt er í verslun og þjónustu og leikskólinn Undraland er í göngufæri.
Eignin er staðsett austast í bænum. Varmáin rennur stutt frá og óspillt náttúran með fallegum göngu & hjólaleiðum allt um kring.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.