Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:
FOSSTÚN 14 - SELFOSSI - EINBÝLIMikið endurnýjað, vandað og vel við haldið einbýlishús á einni hæð á frábærum stað innst í rólegum botnlanga.
Húsið er alls 126,5 fm og er innbyggður bílskúr þar af 20,8 fm.
Lóðin er ca. 506 fm eignarlóð innst í botnlanga og eru þaðan fallegar gönguleiðir með Ölfusá og víðar.
Miklir sólpallar eru við húsið á tvo vegu með skjólgirðingum og heitum potti
Húsið er mjög mikið endurnýjað á síðustu 3-4 árum, m.a. nýir gluggar og gler í öllu húsinu, allt nýtt í eldhúsi, aðalbaðherbergi og gestasnyrtingu ásamt því að skipt var um gólfefni, parket og flísar.
NÁNARI LÝSING:Forstofa/gangur með fataskápum og flísum á gólfi.
Tvö góð barnaherbergi með parketi og er annað þeirra með skápum.
Gesta snyrting, allt endurnýjað, flísalögð að hluta ,innrétting og flísar á gólfum.
Hjónaherbergi með parketi og fataskápum, útgengt út á plássgóðan pall til vesturs með skjólgirðingu.
Glerhurð er úr svefnálmu/gangi og inn í stofu og eldhúsrými.
Þvottahús með góðri innréttingu og er þaðan innangengt í bílskúrinn sem er með flísum á gólfi og hurð út í garðinn ásamt góðum gluggum. Geymsluloft yfir. Auðvelt er að nýta bílskúrinn sem plássgott herbergi með sérinngangi.
Stofurnar eru mjög rúmgóðar með góðri lofthæð, innbyggð led lýsing, parket á gólfum.
Eldhúsið sem allt er endurnýjað er með fallegri hnotu innréttingu flísar á gólfum, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél
Útgengt er úr stofunni og eldhúsinu á mjög stóran trépall með skjólgirðingum og heitum potti ásamt góðri grillaðstöðu.
Lóðin/garðurinn er allur í fyrirmyndarviðhaldi eins og heildareignin bæði innan sem utandyra.
Plássgott ca 4ra bíla hellulagt bílaplan með snjóbræðslu er fyrir framan húsið
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða
gimli@gimli.isEignin Fosstún 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 225-0604, birt stærð 126.5 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Ólafur Björn Blöndal í síma 6900811, eða olafur@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala