Fasteignaland fasteignasala kynnir í sölu
Svínhagi L7 B - F2354478. Landnúmer 222401 Stærð - 19100 m2 eignarlóð í landi Svínhaga Rangárþingi ytra. Gríðarlega flott og stæðileg lóð með miklu útsýni og nálægt á.
Það er ekki komið vatn né rafmagn að lóðinni en auðvelt að fá heimtaugar að lóð sem aðgengilegt er á svæðinu.
Svæðið er við jaðar hálendisins og stutt er í náttúrperlur eins og Landmannalaugar, Heklu og Veiðivötn svo eitthvað sem nefnt.
Mjög falleg fjallasýn á Heklu, Búrfell og fjallgarða þar í kring. Svæðið er veðursælt og eru endalausir útivistarmöguleikar hvort sem er að vetri eða sumri og er stutt í afréttarlönd fyrir skotveiðimenn.
Birkiskógur er að ná sér á strik á svæðinu á sumum spildum en svæðið er einnig hluti af Hekluskóga svæði og er því hægt að fá birkiplöntur án endurgjalds.
Fallegar gönguleiðir eru meðfram Svínhagalæk og upp með Selsundsfjalli og Bjólfelli.
Flestar spildurnar liggja að Svínhagalæk sem er töluvert vatnsmikil bergvatnsá, landslag á svæðinu er stórbrotið og trjónir Hekla yfir svæðinu en fáir staðir hafa jafn fallega ásýnd á fjallið.
Vegi, vatni og rafmagni verður skilað að landamörkum, möguleiki er að stofna lögbýli á spildum og hafa fjölmörg slík verið stofnuð úr landi Svínhaga.
Kort HeklubyggðAkstursleið: Keyrt er eftir þjóðvegi 1 framhjá Hellu, 2 km austan við Hellu er beygt til vinstri, veg 264.Vegur 264 er keyrður 6,7 km að veg 268 þar er beygt til vinstri. Vegur 268 er keyrður 18 km þá er komið að upplýsingaskilti um Heklubyggð. Þessi leið er 108 km og tekur ca 1 klst og 10-20 mín að keyra hana frá Reykjavík. Sjá nánar á www.heklubyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209, 599-6705 hordur@fasteignaland.is
Fasteignaland fasteignasala
Skeifan 2, Reykjavík
s 599-6700
fasteignaland@fasteignaland.is