Fasteignasalan TORG kynnir:
Vel skipulögð og björt fimm herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi ásamt bílskúr í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu í Kópavogi. Eignin í heild er skráð 133 fm, og skiptist í íbúð á hæð 109 fm og bílskúr 24 fm.
Eignin skiptist í forstofu og stigahús, eldhús, þvottahús innaf eldhúsi, bjarta stofu og borðstofu með útgengi á suður svalir, baðherbergi, 4 svefnherbergi, kalt geymsluloft og bílskúr.
Nánari upplýsingar veita Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is, og Jóhanna Kristín, löggiltur fasteignasali, s. 837-8889 og johanna@fstorg.isNánari lýsing: Forstofa: Sérinngangur er í íbúðina, rafmagnshitun er í tröppum við inngang til að tryggja snjólaust aðgengi.
Hol: Fatahengi og parketlagður stigi upp í íbúðina.
Herbergi I: Svefnherbergi inn af holi með glugga til norðurs. Parket á gólfi.
Eldhús: Ljós eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi og borðkrók. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Innaf eldhúsi.
Stofa- og borðstofa: Stórir gluggar til suðurs og útgengi á svalir einnig til suðurs. Parket á gólfi.
Í svefnherbergisálmu eru 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting undir vaski og handklæðaofn. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Herbergi II: Parket á gólfi.
Herbergi III: Innréttað sem fataherbergi í dag. Parket á gólfi.
Herbergi IV: Parket á gólfi.
Bílskúr: Gönguhurð er á bílskúr og hann er einnig með rafmagni, heitu- og köldu vatni og niðurfalli í gólfi.
Geymsluloft: Íbúðinni fylgir helmingur háalofts hússins þar sem er gott geymslupláss. Rýmið er kalt.
Stór garður er við húsið ásamt sameiginlegu leiksvæði framan við húsið.
Góð bílastæði eru við húsið þar sem hver íbúð hefur sérmerkt stæði.
Björt og vel skipulögð fimm herbergja íbúð á efri hæð í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu. Fjögur svefnherbergi. Svalir og garður til suðurs. Sérinngangur og bílskúr.
Nánari upplýsingar veita Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is, og Jóhanna Kristín, löggiltur fasteignasali, s. 837-8889 og johanna@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.