Fasteignaleitin
Skráð 4. nóv. 2025

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
37.800.000 kr.
BH
Berta Hawkins
Jarðhæð
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
20722952
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar svalir
Upphitun
Kæling/hiti
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEG ÍBÚÐ MEÐ 80 FM SVÖLUM MEÐ ÚTSÝNI YFIR LAS RAMBLAS GOLFVÖLLINN* *SÉR INNGANGUR* *STÆÐI FYRIR GOLFBÍLINN FYLGIR* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI*

Íbúðin er á fyrstu hæð með sér inngangi. Svalirnar eru stórar, 80 fm og með útsýni yfir Las Ramblas golfvöllinn.  Stórar bjartar stofur með gólfsíðum gluggum og stórum rennihurðum út á svalirnar. Eldhús er nýlegt, með miklu skápaplássi og tvöföldum ísskáp. Svefnherbergin eru þrjú, öll með skápum og tvö þeirra eru með útgengi út á svalirnar. Eitt svefnherbergi er með sér baðherbergi með baðkari. Hitt baðherbergið er með sturtu. Borðstofa er í sér rými, en þó opið við stofu. Þetta er einstaklega vel skipulögð og björt eign og hentar vel fyrir fjölskyldur eða til að eyða frídögunum, einungis stutt ganga í Las Ramblas klúbbhúsið.
Eigninni fylgir góð geymsla, stæði fyrir golfbílinn, og aðgangur að sameiginlegum sundlaugargarði.

Rúmgóð og vel skipulögð eign með einstöku útsýni á hinum vinsæla Las Ramblas golfvelli, um 50 mín akstur suður af Alicante. 

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, Sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is


Eignin er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Verð: 270.000 Evrur. (ISK 37.800.000,- miðað við gengi 1E=140ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir.
Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig.
Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.
Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa  að koma strax aftur.
En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.

Eiginleikar: útsýni, air con, sundlaug, stórar svalir, golf, endursölueign,
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf, La Fuente,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureitur íb 701 penthouse
Efsta hæð
Heitur pottur
Opið hús:25. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur íb 701 penthouse
108 Reykjavík
182,5 m2
Fjölbýlishús
413
Fasteignamat 125.550.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Orkureitur - D1-705
Opið hús:25. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D1-705
108 Reykjavík
130,1 m2
Fjölbýlishús
423
1350 þ.kr./m2
175.700.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D1-703
Opið hús:25. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D1-703
108 Reykjavík
170 m2
Fjölbýlishús
422
1341 þ.kr./m2
228.000.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D1-606
Opið hús:25. okt. kl 12:00-13:00
Orkureitur - D1-606
108 Reykjavík
140,9 m2
Fjölbýlishús
422
1205 þ.kr./m2
169.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin