Fasteignaleitin
Skráð 1. apríl 2026

Kjarrhólmi 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
84.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.500.000 kr.
Fermetraverð
859.005 kr./m2
Fasteignamat
61.800.000 kr.
Brunabótamat
47.500.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2063235
Landnúmer
115260
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Sjá lýsingu
Raflagnir
Sjá lýsingu
Frárennslislagnir
sjá lýsingu
Gluggar / Gler
sjá lýsingu
Þak
Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags Kjarrhólmi 2-38. Á aðalfundi 2025 var kynnt úttekt á ytra byrði frá Verkþjónustunni. Einnig var kynnt framkvæmdaáætlun frá Múr og Mál. Fram kom að fyrirhugað er að fara í framkvæmdir í þremur fösum. Fyrsti fasi snýr að endurnýjun glugga á norðurhlið en annar og þriðji fasi snúa að múrviðgerðum og málun á sitthvorum helmingi hússins norðanmegin. Þá var einnig samþykkt innheimta á eigendur vegna fyrsta fasa en ekki hefur verið tekin ákvörðun hvenær sú innheimta mun hefjast. Einnig var tekið fram að framkvæmdainnheimta eigi eftir að breytast m.t.t.  séreignakostnaðar þegar á líður. Sjá nánar í aðalfundargerð 24.03.25. Á aðalfundi 2026 var farið yfir áframhaldandi framkvæmdir. Stjórn var veitt samþykki til að semja áfram við Múr og Mál. Á árinu verður farið í endurbætur á múr og málað á norðurhlið, járnhandrið við innganga lagfærð og endurmáluð, verklok áætluð í ágúst. Samþykkt var að innheimta eigendur á 12 mánuðum vegna framkvæmdanna. Stjórn er enn að vinna að málum tengdum lóðaleigusamning og mun upplýsa eigendur þegar niðurstaða kemst í málið. Stjórn var falið að leita eftir betri samningum fyrir hleðslustöðvar. Sjá nánar aðalfundargerð 05.02.2026
Fyrirhugaðar samþykktar framkvæmdir á vegum húsfélags. Úttekt hefur farið fram á ástandi hússins, Verkþjónustan, úttektir stigaganga vegna gluggaviðgerða 2025. Samþykkt að skipta um glugga og gler í sameign Kjarrhólma 8 eftir þörfum ásamt hurðareiningu sem er á bakhlið stigagangs. Á aðalfundi 2026 var farið yfir áframhaldandi framkvæmdir. Stjórn var veitt samþykki til að semja áfram við Múr og Mál. Á árinu verður farið í endurbætur á múr og málað á norðurhlið, járnhandrið við innganga lagfærð og endurmáluð, verklok áætluð í ágúst. Samþykkt var að innheimta eigendur á 12 mánuðum vegna framkvæmdanna. Stjórn er enn að vinna að málum tengdum lóðaleigusamning og mun upplýsa eigendur þegar niðurstaða kemst í málið. Stjórn var falið að leita eftir betri samningum fyrir hleðslustöðvar. Sjá nánar aðalfundargerð 05.02.2026. Seljendur greiða fyrir samþykktar og yfirstandandi framkvæmdir.
Annað sem varðar húsfélagið:
Á húsfundi 28. september 2023 var samþykkt að ganga til samninga við Kópavogsbæ vegna endurnýjun á lóðaleigusamning. Var tillaga 3 samþykkt þar sem stækkun lóðamarka. Sjá húsfundargerð 28.09.2023 og aðalfundargerð 20.02.2024
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu mikið endurbætta 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2. hæð við Kjarrhólma 8 í Kópavogi. Eignin er einkar vel skipulögð, björt og rúmgóð. Sameign hefur verið mikið endurbætt og nú er verið að leggja lokahönd á gagngerar endurbætur á húsinu sjálfu.

Birt stærð eignar er 84,4 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 9,3 fm geymsla.

Eignin skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar. Einnig fylgir sérgeymsla í kjallara og hlutdeild í snyrtilegri sameign.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Þórey veitir allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða á netfanginu thorey@fastlind.is.


Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús með innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur og flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa, bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfi og fallegu útsýni.
Hjónaherbergi með sérsmíðuðum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi með sérsmíðuðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt að mestu, með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús, innan íbúðar með innréttingu og skolvaski, flísar á gólfi.
Geymsla, sérgeymsla í kjallara með máluðu gólfi. Þar er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla sem og þurrkherbergi.

Fyrir framan húsið eru fjölmörg sameiginleg bílastæði og hafa verið settar upp nokkrar hleðslustöðvar. Við húsið er sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.
 
Húsgjöld í húsfélagið Kjarrhólma 2-38 eru kr 18.404 á mánuði en þá er innifalin húseigendatrygging, almenn húsgjöld og framkvæmdasjóður. Húsgjöld í húsfélagið Kjarrhólma 8 eru kr 8.216  á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur, allur hiti, rafmagn í sameign og þrif á sorpgeymslu.

Viðhald og framkvæmdir:
Íbúðin hefur fengið gott viðhald og verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum. Árið 2013 var skipt um allt gler í íbúðinni. Árið 2014 voru gólfefni endurnýjuð, settar nýjar innihurðir, sérsmíðaðir fataskápar frá Trésmiðjunni Borg, skipt um alla rafmagnstengla og rofa, auk þess sem nýir sólbekkir voru settir. Árið 2016 var þvottahús endurnýjað með sérsmíðaðri innréttingu og árið 2019 var baðherbergi tekið í gegn með sérsmíðaðri innréttingu.

Sameign hússins er mjög snyrtileg og hefur fengið gott viðhald. Árið 2018 voru gerðar endurbætur á hitainntaki í lagnaherbergi. Árið 2020 var stigagangur endurnýjaður, málaður og teppalagður, auk þess sem ný lýsing, tenglar og rofar voru sett upp. Árið 2022 var rafmagnstafla endurnýjuð og árið 2023 var settur upp nýr dyrasími með myndavélakerfi.

Á árunum 2017–2025 hafa farið fram umfangsmiklar framkvæmdir á húsinu. Þar má nefna glugga- og glerskipti á bæði suður- og norðurhlið, múrviðgerðir og lagfæringar á svölum, málun á gluggum, svalahandriðum og veggjum, auk þakviðgerða þar sem öll þök hafa verið yfirfarin og/eða endurnýjuð. Nú eru yfirstandandi múrviðgerðir á norðurhlið og stendur til að mála hana sumarið 2026.
 
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/08/201215.250.000 kr.18.500.000 kr.75.1 m2246.338 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrarvegur 118 íbúð 201
Mýrarvegur 118 íbúð 201
600 Akureyri
80.3 m2
Fjölbýlishús
312
659 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Ásatún 40
Skoða eignina Ásatún 40
Ásatún 40
600 Akureyri
67.3 m2
Fjölbýlishús
212
854 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Skoða eignina Bólstaðarhlíð 60
Bólstaðarhlíð 60
105 Reykjavík
116 m2
Fjölbýlishús
413
703 þ.kr./m2
81.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (110)
Opið hús:12. apríl kl 14:30-15:00
Template (7).jpg
Skoða eignina Laugaborg (110)
Laugaborg (110)
105 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
312
988 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin