Fasteignasalan TORG kynnir: Einstaklega fallega og vel hönnuð, 3ja herb. þakíbúð með fallegu útsýni á vinsælum stað í Fossvogi Sér inngangur, 2 sérmerkt bílastæði. Íbúðin er skráð hjá FMR 119,9 fm þar af er geymsla 9,6fm, einnig fylgir íbúðinni hjóla og vagna geymsla í sameign í kjallara. Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lgf.í síma: 690 4966 eða í matthildur@fstorg.isÍbúðin er einstaklega fallega hönnuð af Rut Káradóttur arkitekt og lýsing af LUMEX. Allar innréttingar eru spónlagðar með svörtum Aski og eru sérsmíði frá HEGGUR ehf. Einstaklega fallegur marmari frá FIGARO er á borðplötum og upp á veggi í eldhúsi. Blöndunartæki bæði í eldhúsi og á baði eru af vandaðri gerð frá GROHE í ''gunmetal'' lit. Innihurðir eru í yfirstærð. Gólf utan hjónaherbergis eru lögð 120X120 cm flísum frá EBSON en teppi eru á stiga og hjónaherbergi. Íbúðin státar af tvennum svölum, aðrar til suðurs ríflega 20fm og hinar til vesturs, 5 fm. Ljósastýringakerfi í íbúð er Free-at-home frá LUMEX. Góð hljóðvist er í íbúðinni. Gólfhiti nema í anddyri og svefnherbergjum.
Frekari lýsing: Gengið er inn í flísalagt andyri, þaðan er gengið upp fallegan teppalagðan stiga með stál handriði og lýsingu, loft og veggur í stigahúsi er klætt hljóðvistarplötum að hluta.
þegar komið er upp tekur á móti glerveggur með stál römmum og reyklitu gleri sem skilur að hjónaherbergið og ganginn sem leiðir í önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús, borðstofa og stofa eru einu björtu rými. Gluggar eru gólfsíðir með rennihurð út á yfir 20 fm svalasvæði.
Eldhúsinnrétting er mjög vegleg á tvo veggi hún nær upp í loft, fallegur tækja/ bar skápur með hillum og skúffum og klæddur marmara að hluta að innan, lýsing er inni í tækjaskáp.
Eyja með góðu geymsluplássi og glæsilegum marmara skilur að borðstofu og eldhús. Innfelld lýsing er undir efri skápum og hillu í eldhúsi. Bakarofn og combi ofn frá SIEMENS eru í vinnuhæð.
Gas helluborð með 5 brennurum. Innbyggður 176cm kæliskápur frá LIEBHERR með 2 frysti skúffum og klakavél. Innbyggð uppþvottavél í XL frá SIEMENS.
Vaskur og blöndunartæki í ''gunmetal'' lit. Stór sérsmíðuð hilla með lýsingu tengir borðstofu við eldhús.
Hljóðvist er mjög góð þar sem hljóðvistarplötur eru í hluta loftaklæðningar, Lýsing er innfeld og Find Me kastarar ásamt skugga lýsingu ofan við glugga og víðar.
Hjónaherbergi: Fataskápar upp í loft á einn vegg. Lýsing er fallega hönnuð með innfelldum ljósum sem lýsa að fataskápum og einnig Find Me kösturum frá FLOS. Skuggalýsing er ofan við glervegg og svalahurð. Gengið er út á vestur svalir frá hjónaherbergi. Gólf er teppalagt.
Baðherbergi: Flísalagt á tvo veggi. Innrétting með skúffum og marmara handlaug og borðplata í einu stykki. Innbyggð blóndunartæki bæði í sturtu og fyrir handlaug. Ofanvið handlaug er stór spegill með ASTRO veggljósum frá LUMEX. Sérsmíðuð handklæða slá úr stáli í ''gunmetal''. Innbyggð loftljós og skugga lýsing ofan við glugga.
Reyklitað öryggisgler skilur að sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi2: Innfeld lýsing og Find Me kastarar frá FLOS. Gólf er flísalagt.
Þvottahús: Gott þvottahús með klæðaskáp upp í loft ásamt skáp sem getur geymt ryksugu og aðrar hreinlætisvörur. Gott vinnuborði með vaski og hilla ofanvið, tengi fyrir þvottavél og þurkara. Opnanlegur gluggi.
Suðursvalir: Flísalagðar á flísastóla, heitur pottur, 2 rafdrifnar markisur og ca3 fm upphituð geymsla
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Matthildur Sunna Þorláksdóttir lgf.í síma: 690 4966 eða í matthildur@fstorg.is
*Vakin er athygli á því að seljandi er starfsmaður á fasteignasölunni TORG