Hraunhamar kynnir fallega og mikið endurnýjaða 3 herbergja endaíbúð á annarri hæð í snyrtilegu fjölbýli við Móabarð í Hafnarfirði. Íbúðin er 86,7 fm með geymslu. Búið að stúka af lítið vinnuherbergi innaf stofunni.
Íbúðin er björt og glæsilegt útsýni.
Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, eldhús, baðherbergi, tvö herbergi, vinnuherbergi, geymsla og svalir, auk reglubundinnar sameignar.
Nánari lýsing: Forstofa, innaf forstofunni er fínt fataherbergi/geymsla.
Barnaherbergi með fataskápum.
Nýlega uppgert
baðherbergi með nýrri innréttingu, walk-in sturtu og upphengdu salern og góð þvottaaðstaða inni á baðherberginu.
Hjónaherbergi með nýjum fataskápum og þaðan er utangengt út á flísalagðar suðursvalir.
Eldhús með fallegri nýrri innréttingu, eyja og vönduðum tækjum, opið milli stofu og eldhúss.
Björt og rúmgóð
stofa. Innaf stofunni fínt vinnuherbergi, en auðvelt að breyta því til fyrra horfs og stækka stofuna.
Gólfefni er harðparket og flísar.Yfirstandandi framkvæmdir eru á gluggum, búið er að skipa um hluta af gluggum í íbúðinni og verður klárað í sumar að skipta út þeim gluggum sem ekki hafa verðið endurnýjaðir. Þessar framkvæmdir verða greiddar af seljanda.
Í Kjallara er góð geymsla, sameignlegt þvottahús, auk reglubundinnar sameignar. Þetta er er falleg eign sem er nýlega endurnýjuð an innan á smekklegan hátt. Eign sem vert er að skoða.
Bókið einkaskoðun hjá Hlyni Halldórssyni löggiltum fasteignasala í síma 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.