Fallegur sumarbústaður í Húsafelli Domusnova og Stefán löggiltur.fasteignasali kynna:
Skógarbrekkur 6, Húsafelli. Falleg hús byggt 2002
Um er að ræða 68 fm hús á tveimur hæðum vel staðsett miðsvæðis í Húsafelli stendur á
5.000 fm leigulóð, kjarri vaxin. Vönduð eign sem að hefur fengið gott viðhald.
Nánari lýsing
Anndyri er með dúk á gólfi
, fatahengi er við inngang
, inn af anddyri er
geymsla/þvottahús.
Stofa og eldhús mynda opið og bjart alrými útgengt á sólpall að framanverðu. frá stofu er gengið upp á rúmgott
svefnloft með góðri lofthæð.
Baðherbergi, dúkur á gólfi, sturta, vaskskápur, hillur, dyr út á sólpall.
Svefnherbergi eru tvö, annað þeirra er með koju. Fataskápur er á gangi framan við svefnherbergi.
Veröndin umlyggur húsið, heitur pottur. Hitaveita og ljósleiðari.
Hús er kynnt með hitaveitu. Tengi fyrir rafbíl 9 kv. Hluti innbús getur fylgt með, allt eftir nánara samkomulagi.
Fjarlægð frá Reykjavík er 130 um km, 71 km á Akranes og 65 km. í Borgarnes.
Almennt um Húsafell:Húsafell er meðal fjölsóttustu ferðamannastaða hér á landi, enda einstök náttúruperla í stórkostlegu landslagi. Veðursældin,skógurinn, heitar laugar og sú aðstaða og þjónusta fyrir ferðamenn, sem þar hefur verið komið upp á undanförnum árum, laðar til sín fjölda ferðamanna og dvalargesta á hverju ári. Húsafellsskógur er lágvaxinn birkiskógur á hrauni sem hefur myndast fyrir landnám. Vilja kunnugir meina að dalbotninn í Húsafelli sé einn af veðursælustu stöðum landsins. Húsafell er ríkt af auðlindum, bæði heitu og köldu vatni sem gerir staðinn góðan til búsetu og orlofsbyggðar.
Öll helsta þjónusta er á staðnum, veitingastaður, strandblakvöllur, sundlaug og þjónustumiðstöð. Á svæðinu eru sérlega fallegar gönguleiðir og stutt í náttúruperlur eins og Langjökul, Arnarvatnsheiði, Hraunfossa, Barnafossa og einnig er á staðnum 9 holu glæsilegur golfvöllur. Á sumrin eru gjarnan kvöldskemmtanir með varðeldi og lifandi tónlist á laugardagskvöldum. Á svæðinu er glæsilegt tjaldstæði með aðgengi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni.
Húsafell er paradís fyrir sumarbústaðaeigendur jafnt að sumri og vetri. Allt almennt þjónustustig er stöðugt að aukast á svæðinu.
Rekstrarkostnaður:- Fasteignagjald 2026 um kr. 215.000 per ár
- Lóðaleiga 2026 um kr. 290.000 per ár
- Hitaveitukostnaður (neysluvatn og kynding) per mánuð er um kr. 20.000,-.
- Rafmagnkostnaður per mánuð er um kr. 9.000,-
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðunni
www.husafell.is og facebook síðu Húsafells.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán sími 896-9303, stefan@domusnova.is