Valhöll kynnir vel skipulagða og vandaða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með yfirbyggðum svölum og bílastæði í bílakjallara við Drómundarvog 6 í Reykjavík.
Sjáðu myndband af eigninni.
Um er að ræða íbúð sem skráð er 88,3 m2 að stærð skv. fasteignaskrá HMS og þar af er 6,7 m2 geymsla innaf sameign. Húsið er byggt árið 2021 af Sérverk.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi inn af, geymslu í kjallara auk sérmerkts bílastæðis í bílakjallara.
Íbúðin er mjög vel með farin, vel skipulögð og á frábæru verði.Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi, sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar og fjölbreytt verslun og þjónusta á Skeifusvæðinu.Nánari upplýsingar veitir:Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is
Nánari lýsing:Forstofa: með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhús: í alrými með fallegri innréttingu, eyju með helluborði, ofni í vinnuhæð, aðstöðu fyrir uppþvottarvél og harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: í alrými með eldhúsi með harðparketi á gólfi og útgengi á svalir með glerlokun og timburfjölum á gólfi.
Svefnherbergi I: rúmgott með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: með innréttingu undir vaski og speglaskáp fyrir ofan vask, "walk in" sturtu, upphengdu salerni og flísum á gólfi og veggjum.
Þvottaaðsaða: inn á baðherbergi með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvask, skápum, opnanlegum glugga og flísum á gólfi.
Svalir: notalegar yfirbyggðar svalir með timburfjölum á gólfi.
Bílastæði: bílastæði í bílakjallara. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu og stigahús.
Geymsla: 6,7 m2 sérgeymsla í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg hjóla í kjallara.
Húsfélagsgjöld eru 26.198 kr. á mánuði.
Eignarhlutur íbúðar í húsinu er 1,49%.
Nánari upplýsingar veitir:
Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-3090 eða í tölvupósti á netfanginu elina@valholl.isSnorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfanginu snorribs@valholl.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.