ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Framnesvegur 20–22, íbúð 0401, Reykjanesbæ. Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi, alls 90,9 fm að stærð.Íbúðin skiptist í bjarta og rúmgóða stofu, borðstofu og eldhús í opnu alrými með útgengi út á yfirbyggðar svalir þar sem njóta má útsýnis og skjóls allt árið um kring. Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum. Baðherbergið er rúmgott og inn af því er sér þvottahús. Sérgeymsla er á jarðhæð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á neðstu hæð hússins.
Eignin er einstaklega vel staðsett þar sem
stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og afþreyingu.
Fallegar gönguleiðir meðfram sjónum eru í næsta nágrenni og frá íbúðinni er
fallegt útsýni yfir Faxaflóa sem setur svip sinn á daglegt líf.
Húsið var tekið í umfangsmiklar endurbætur að utan sumarið 2023, meðal annars voru framkvæmdar múrviðgerðir, gluggar lagfærðir, útveggir háþrýstiþvegnir, sílaðir og málaðir, þak yfirfarið og málað auk þess sem hluti sameignar var málaður.Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergs nemi til löggildingar fasteignasala í síma 772-7930 og á netfanginu halla@allt.is
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Helstu kostir:*** Fallegt útsýni yfir Faxaflóa.
*** Stutt er í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir með hafinu.
*** Yfirbyggðar svalir.
*** Stæði í bílastæðahúsi.
*** Yfirbyggður gangur milli bílageymslu og aðalbyggingar.
*** Lyftuhús.
*** Vel skipulögð og björt eign.
*** Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og útivist.
Eign sem vert er að skoða.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.