Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

Lautargata 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
165.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
165.000.000 kr.
Fermetraverð
997.582 kr./m2
Fasteignamat
11.400.000 kr.
3. hæð af 5
Garður
Svalir
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2540143
Landnúmer
231792
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
nýbygging
Raflagnir
nýbygging
Frárennslislagnir
nýbygging
Gluggar / Gler
nýbygging
Þak
nýbygging
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
6,35
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Bogi fasteignasali og Lind fasteignasala kynna til sölu:  Lautargata 2 er fimm hæða fjölbýlishús með 19 íbúðum.  Íbúðirnar eru 2ja -  4ra herbergja.  67 – 166fm.    Burðarvirki hússins er staðsteypt úr járnbentri steinsteypu og útveggir klæddir með áli og steintrefjaplötum.  Níu bílastæði eru í bílgeymslu. Utanhúss eru 21 bílastæði.  Á 1.hæð eru geymslur íbúða, inntök veitna og rafmagns, sorpgeymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.  Fyrir íbúð á 1. hæð er sérafnotareitur á garðhlið lóðar en á 2. hæð er sérafnotareitur fyrir tvær íbúðir.  Bílgeymsla er við húsið.   Í byggingunni er eitt stigahús og ein lyfta.   Húsið er hannað af RÝMA arkitektar.  Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttigum og tækjum.  Baðherbergi og þvottahús flísalögð en annað án gólfefna.

Íbúð 305 . Stór 4ra herbergja endaíbúð/austurendi.  Þrjú herbergi, tvö baðherbergi, svalir til suðurs og stæði í bílskýli.   Skráð alls 165,4fm.  Íbúðarrými 156,9fm.  Geymsla 8,5fm. Stæði B08  Sölusíða:

Lautargata 2:  Húsið er fimm hæða fjölbýlishús með 19 íbúðum.  Bílgeymsla er við húsið.  Burðarvirki hússins er staðsteypt úr járnbentri steinsteypu og útveggir klæddir með áli og steintrefjaplötum.  Húsið er hannað af RÝMA arkitektar.  Níu bílastæði eru í bílgeymslu. Utanhúss eru 21 bílastæði.
Íbúðirnar eru 2ja -  4ra herbergja.  67 – 166fm.    Á 1.hæð eru geymslur íbúða, inntök veitna og rafmagns, sorpgeymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.  Fyrir íbúð á 1. hæð er sérafnotareitur á garðhlið lóðar en á 2. hæð er sérafnotareitur fyrir tvær íbúðir. Hönnun og aðkoma miðast við þarfir fatlaðra. Í byggingunni er eitt stigahús og ein lyfta.  Lóðin er 2224fm af stærð og er leigulóð í eigu Garðabæjar.  Lóðin er leigð til 75 ára frá 2021. 
Íbúðir:  Eru af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Á 1. hæð/jarðhæð er ein 2ja herbergja með sérafnotareit. Á   2.  3. og 4. hæð eru 5 íbúðir  með sérinngang af svölum, 3ja og 4ra herbergja íbúðir.    Á 5. hæð eru þrjár íbúðir.  Í miðju er 3ja herbergja íbúð og í endum 4ra herbergja íbúðir.  Íbúðir 5. Hæðar eru með stórum þaksvölum.
Byggingarlýsing: Húsið er staðsteypt hús á hefðbundinn hátt,  einangrað að utanverðu  með 100 mm steinull. Yfir einangrun eru útveggir ýmist klæddir með loftræstri álklæðningu eða steintrefjaplötum sem fest er á þar til gert upphengikerfi úr áli. Álklæðiningin liggur lóðrétt úr riffluðum plötum með innbrenndum dökkbrúnum lit. Steintrefjaplötur eru í gráum lit. (sjá nánari byggingalýsingu á teikningum)
Frágangur innanhúss: Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna , en með flísalögðu baðherbergi og þvottahúsi. Allar innréttingar eru frá Brúnás sérsmíðaðar, spónlagðar og eða spraulakkaðar.   Steinn er á borðum í eldhúsi ,endagaflar þó spónlagðir og eða sprautulakkaðir með undirfræstum eldhúsvaski en borðplötur í baðherbergjum og þvottahúsi eru plastklæddar. Eldhústæki  eru AEG  frá Ormson. Blöndunartæki eru af gerðinni Hanza frá Tengi, handlaugar og wc skálar eru einnig  frá Tengi.
Milliveggir: Milliveggir innanhúss eru hlaðnir og múraðir í kringum öll votrými, en aðrir milliveggir eru reistir úr blikkstoðum og klæddir með tvöföldu gipsi hvoru megin.
Hitakerfi: Íbúðir og sameign eru upphituð með gólfhitakerfi skv. teikningum lagna hönnuða,  Rafrænt loftræstikerfi með útsogi er í gluggalausum rýmum. Á viðeigandi stöðum á útveggjum eru lofttúður með innbyggðri hljóð og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um ákveðin svæði. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Rafmagn:  Rofar og tenglar eru hvítir. Rafmagns og sjónvarpslögn er frágengin ásamt tölvutenglum í herbergjum. Mynddyrasími fylgir hverri íbúð. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld ljós verða í opnum rýmum í íbúðunum, og þeim skilað fullfrágengnum. Kúplar eru í þvottahúsi baðherbergi og geymslu
Gluggar og útihurðir: Gluggar og svalahurðir eru frá Byko  Ál / tré . Opnanleg fög og svalahurðir eru með eru með opnunarstillingu til loftunar.   Útihurðir/Aðalhurðir eru úr áli rmeð opnunarbúnaði.  Allt gler er K-gler eða sambærilegt skv. Byggingareglugerð. Með glerinu fylgir sú ábyrgð sem framleiðandi glersins veitir.
Bílageymsla:  Veggir að innanverðu verða slípaðir og málaðir.  Hitablásarar og loftræsikerfi verða frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað með góðum afrennslishalla.  Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílageymslu er frá Héðni, frágengin með sjálfvirkum  opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöðvum fyrir rafbíla við hvert stæði. Bílageymsla er loftræst  og lítilsháttar upphituð,  ca 10°C.  Í bílageymslu eru 9 bílastæði.
Bílastæði og möguleiki á rafhleðslu:   Bílastæði eru samtals 30.  9 bílastæði í bílageymslunni og 21 á bílaplani við húsið. Gert er ráð fyrir rafhleðslustaur við eitt stæði utanhúss en auk þess möguleiki á rafhleðslu við öll önnur bílastæði jafnt innan – sem utanhúss. Bílastæði verða lögð gegndræpu yfirborði en gönguleiðir og aðkoma við inngang verður hellulagt. 
Lóð: Lóðarfrágangur í samræmi við lóðaruppdrátt , umhverfi hússins verður að mestu þakið grasi og mó-/lyngtorfi ásamt gróðurbeðum fyrir trjágróður og plöntur.
Skipulagsgjald:  Kaupandi greiðir þegar þess er krafist.

Aðalhönnuður :  Rýma arkitektar, Gunnar Páll Kristinsson arkitekt
Burðarvirki og lagnir :  Verkfræðistofan Víðsjá
Raflagnahönnun :   Sturla Snorrason rafverktaki.
Húsbyggjandi og Aðalverktaki :  Bergmót ehf.

Söluaðilar:   Bogi Molby Pétursson löggiltur fasteignasali og  Lind fasteignasala. 
Sími: 6993444 og Molby@fastlind.is


Seljendur/Kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar.  Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum:  Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og vodafone.  Hentugt þegar keypt er nýbygging!
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2540143
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (5)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautargata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lautargata 2
Lautargata 2
210 Garðabær
164.4 m2
Fjölbýlishús
413
998 þ.kr./m2
164.000.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lautargata 2
Lautargata 2
210 Garðabær
164.5 m2
Fjölbýlishús
413
1021 þ.kr./m2
168.000.000 kr.
Skoða eignina Rauðamýri 13
Bílskúr
Skoða eignina Rauðamýri 13
Rauðamýri 13
270 Mosfellsbær
163.3 m2
Raðhús
312
741 þ.kr./m2
121.000.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 2
Skoða eignina Lautargata 2
Lautargata 2
210 Garðabær
67.6 m2
Fjölbýlishús
211
1036 þ.kr./m2
70.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin