Glæsilegt 334,3 fm einbýli á þremur pöllum á frábærum útsýnisstað, með 6 svefnherbergjum og tvöföldum bílskúr á Holtinu í Hafnarfirði.Húsið skiptist í þrjá palla og er sérlega bjart og opið.
* Sólpallur og heitur pottur
* 6 svefnherbergi og 3-4 stofur
* Aukin lofthæð og frábært útsýni
* Golfklúbburinn Keilir í næstu götu****EIGN SEM ER ÞESS VIRÐI AÐ SKOÐA****
Eignin skiptist í: Íbúðarhluta sem er 251,3 fm og 58,0 fm bílskúr,
samtals 309,3 fm skv. Þjóðskrá Íslands. Til viðbótar eru ca 25
óskráðir fermetrar undir bílskúr sem búið er að gera herbergi í og opna inn í íbúðina á neðstu hæð. Mögulegt að útbúa litla íbúð með sérinngangi á jarðhæð.Efsti pallur skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, 3 svefnherbergi og bílskúr:Forstofa er flísalögð með fataskáp og gólfhita.
Eldhús hefur verið glæsilega endurnýjað. Sérsmíðuð innrétting frá HTH og borðplata úr Kvarts-steini, ný og vönduð eldhústæki frá AEG, Stór eldhúseyja með XL helluborði, Bakarofn og combi bakarofn/örbylgjuofn í vinnuhæð, pláss fyrir tvöfaldann ísskáp. Tengi fyrir uppþvottavél. Virkilega gott skápapláss.
Borðstofa er björt og opin með eldhúsi. Parket á gólfi og hiti í gólfi.
Baðherbergi er ný upp gert 2026, flísalagt með innréttingu, wc og sturtu.
Svefnherbergi 1 er inn af forstofu, rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Bílskúr er skráður 58,0 m2 og innangengur úr eldhúsi. Hann er upphitaður, þar er heitt og kalt vatn, tvær bílskúrshurðar, þar af önnur rafdrifin. Flísar á gólfi og ágætt geymsluloft.
Miðjupallur:Stofa er rúmgóð með fallegum arin og miklu útsýni.
Parket á gólfi og niðurgengt í
sólstofu með flísum á gólfi.
Úr sólstofu er útgengt út á rúmgóðan, skjólgóðan
sólpall með heitum potti, grind var endurnýjuð 2020.
Neðsti pallur skiptist í sjónvarpshol, baðherbergi, 3 rúmgóð svefnherbergi og þvottahús:Sjónvarpshol er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, stóru sérsmíðuðu baðkari, sér-sturtuklefa og upphengt wc. Hiti í gólfum og gert var ráð fyrir gufubaði þar inn af. (tengi eru til staðar)
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi, stórum fataskápum og gluggum á tvo vegu. Innangengt í baðherbergi og útgengt út á sólpall.
Svefnherbergi 5 er með parket á gólfi, fataskáp og gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi 6 er mjög rúmgott með parket á gólfi, litlum opnanlegum glugga. Var áður nýtt sem geymsla en breytt 2017. Óskráð rými ca. 21 m2.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu, góðu skápaplássi og útgengt út á sólpall.
Hellulagt bílaplan er fyrir framan hús með snjóbræðslu. Næg bílastæði. Meðfram húsi er göngustígur.
Afar barnvæn og vinsæl staðsetning í Hafnarfirði. Örstutt í leikskólana Vesturkot og Álfastein, Hvaleyrarskóla, Krónan og Bónus í göngufjarlægð sem og íþróttir, útivist og Suðurbæjarlaug svo fátt eitt sé nefnt. Mikið útsýni og golfklúbburinn Keilir í næstu götu.
Góðar upplýsingar um framkvæmdir á húsinu undanfarin ár liggja fyrir í handbók eiganda sem nálgast má hjá fasteignasala.Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is