Vorum að fá í sölu virkilega skemmtilega 113,1 fm 3ja herbergja útsýnis íbúð á tveimur hæðum ásamt bílskúr við Frostafold 23 í Reykjavík.
Eignin skiptist í eldhús, stofu og þvottahús á neðri hæð og á efri hæð er sjónvarpshol (möguleiki að breyta í herbergi), tvö svefnherbergi, baðherbergi og hol. Rúmgóður bílskúr á 1.hæð. Sérgeymsla í sameign. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan.
Eignin er skráð skv. HMS 113,1 m2, neðri hæð: 33,8 m2, risloft: 44,1 m2 og bílskúr 25,3 m2
Eignin er laus strax! Eigandi skoðar skipti á ódýrari íbúð. Helstu kostir:- Sérbílskúr (25 fm) og geymsla í sameign (10 fm)
- Björt íbúð með útgengi á stórar suðursvalir (c.a. 20 fm)
- Mikið endurnýjuð eign með frábæru útsýni
- Góð staðsetning nálægt náttúru og helstu þjónustu
Neðri hæð: Anddyri: Komið er inn í anddyri með fataskáp sem er opið inn að stofu.
Stofa: Björt og góð stofa með útgengt á stórar svalir sem snúa til suðurs með miklu útsýni.
Eldhús: Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað með fallegri innréttingu frá Innlifun og góðum eldunartækjum. Eldhúsið er opið inn að stofu.
Þvottahús: Inn af anddyri er þvottahús.
Hringstigi liggur upp á efri hæð. Efri hæð: Komið er upp í bjart opið rými með mikilli lofthæð og að hluta undir risi.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpsrými er í opnu rými frá holi. Möguleiki er að útbúa þriðja svefnherbergið úr sjónvarpsholinu.
Hjónaherbergi: Að hluta undir risi. góður gluggi og innskot fyrir fataskáp. Parket á gólfi.
Barnaherbergi: Að hluta undir risi. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt nýlega endurnýjað baðherbergi með hvítum flísum, fallegri innréttingu, walk in sturtu með glerskilrúmi. Hiti í gólfi og góð lofthæð er inni á baðherbergi.
Sameign: Sérgeymsla(9,9 fm) er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílskúr: Mjög rúmgóður 25,3 fm bílskúr. Skúrinn er staðsettur næst inngangi og er með gott bílastæði beint fyrir framan hann.
Endurbætur og viðhald:- Íbúðin var mikið endurnýjuð 2022
- Eldhús endurnýjað með innréttingu frá Innlifun 2022
- Baðherbergi endurnýjað alveg og settur hiti í baðherbergisgólf árið 2022
- Allt nýtt í gólfefnum m.a. Pergo harðparket frá Egill Árnason 2022
- Nýtt rafmagn í eldhúsi, baðherbergi og búið að fjölga tenglum í íbúðinni
- Yfirborð á svölum var tekið í gegn 2021
- Skipt um glugga og svalahurð á neðri hæð 2024
Um er að ræða virkilega fallega og mikið endurnýjaða eign sem vert er að skoða. Leikskólinn Sunnufold er handan við húsið og göngufæri er í Foldaskóla. Einnig er göngufæri í verslanir og þjónustu á Foldatorgi og eru undirgöng undir Fjallkonuveg. Stutt í Grafarvogslaug, kirkju o.fl.