Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Torg kynna: *** BÁRUGATA 1, DALVÍK – RÚMGOTT SJÖ HERBERGJA EINBÝLISHÚS MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR OG GÓÐUM GARÐI *** EIGENDUR SKOÐA SKIPTI Á MINNI EIGN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ***Fáðu söluyfirlit strax hér. Um er að ræða mikið endurnýjað 231,5 m
2 einbýlishús á tveimur hæðum við Bárugötu 1 á Dalvík. Eignin telur fimm svefnherbergi, rúmgóðar stofur og innbyggðan bílskúr. Gróinn garður með stórri verönd til suðurs og rúmgóða innkeyrslu.
Eignin var að stórum hluta endurnýjuð árið 2024, meðal annars með nýlegri eldhúsinnréttingu og endurnýjuðu baðherbergi.
Helstu kostir eignarinnar:Fimm svefnherbergi.
Bjartar stofur með gluggum til suðurs og vesturs.
Rúmgott eldhús með nýlegri IKEA-innréttingu.
Nýlega endurnýjað baðherbergi.
Gólfhiti á neðri hæð, að snyrtingu undanskilinni.
Suðursvalir með stiga niður á verönd.
Innbyggður 32,3 fm bílskúr með grifju.
Gróinn garður og góð bílastæði.
Skipting eignarinnar:Efri hæð, 114,8 fm: Forstofa, hol, eldhús, borðstofa, stofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Neðri hæð, 84,4 fm: Forstofa, hol, þrjú svefnherbergi, snyrting, þvottahús og köld geymsla.
Bílskúr, 32,3 fm.
Nánari lýsing eignar – efri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi.
Hol: Parket á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi. Nýleg IKEA-innrétting með góðu vinnuplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél ásamt tvöföldum ofni.
Borðstofa: Parketlögð með stórum glugga til suðurs.
Stofa: Björt stofa inn af borðstofu með parketi á gólfi og stórum gluggum til suðurs og vesturs. Útgengt á suðursvalir og þaðan er timburstigi niður á rúmgóða verönd.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð herbergi með parketi á gólfum.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað með flísum á gólfi og Fibo-veggplötum. Góð innrétting, upphengt salerni, sturta með greiðu aðgengi, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Nánari lýsing eignar – neðri hæð:Forstofa: Flísar á gólfi.
Hol: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi með parketi á gólfum.
Snyrting: Flísar á gólfi.
Þvottahús: Málað gólf og góð vinnuaðstaða með bekkplötu og skolvaski. Útgengt til austurs út á verönd.
Geymsla: Mjög rúmgóð köld geymsla inn af þvottahúsi.
Parketlagður stigi tengir hæðirnar. Gólfhiti er á neðri hæð, að snyrtingu undanskilinni.
Bílskúr: Innbyggður, skráður 32,3 fm, með lökkuðu steyptu gólfi og grifju. Lofthæð er um 2,2 metrar.
Viðhald og endurbætur samkvæmt upplýsingum seljanda:
Eignin var að stórum hluta endurnýjuð árið 2024.
Allar útidyrahurðir og svalahurð hafa verið endurnýjaðar.
Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta.
Hluti ofna hefur verið endurnýjaður.
Húsið var málað að utan sumarið 2023.
Hér er um að ræða rúmgott og bjart fjölskylduhús með fimm svefnherbergjum, góðum útisvæðum og innbyggðum bílskúr. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, í síma
623-1717 eða á svavar@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.