FS fasteignir – 571-9992Undirhlíð 3 201, 603 AkureyriSkemmtileg og vönduð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi með frábæru útsýni út Eyjafjörð. Íbúðin er 111,1 m
2 auk 14,6 m
2 yfirbyggðra svala og 7,2 m
2 sér geymslu í kjallara hússins. Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara.
Eignin skiptist í forstofu/gang, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými, yfirbyggðar svalir og sér geymslu í kjallara.
Fallegar ljósar flísar eru á öllum gólfum íbúðarinnar.
Nánari lýsing:
- Forstofa: Er með eikar fataskáp.
- Þvottahús: Er inn af forstofu, þar er eikar innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, ljós borðplata, stálvaskur og opnanlegur gluggi í austur.
- Baðherbergi: Er rúmgott, fallleg eikar innrétting með speglaskáp, á hluta veggja eru hvítar flísar, upphengt salerni og walk-in sturta með gleri.
- Svefnherbergi: Eru þrjú;
- Svefnherbergi: Inn af forstofu/gangi, þar er eikar fataskápur og opnanlegur gluggi til austurs.
- Svefnherbergi: Inn af stofu, opnanlegur gluggi til vesturs.
- Hjónaherbergi: Er rúmgott með stórum eikar fataskáp og opnanlegum glugga til vesturs. Stór rennihurð inn í herbergið.
- Eldhús: Er í opnu rými með stofu, þar er eikar innrétting með góðu skápaplássi, stæði fyrir uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð, keramik helluborð, ljós borðplata og hvítar flísar á milli bekkjar og efri skápa.
- Stofa: Er bört og rúmgóð með frábæru útsýni yfir fjörðinn, stórir gluggar til norður og austur.
- Svalir: Eru yfirbyggðar, skv. fasteignaskrá HMS er stærð þeirra 14,6 m
2.
- Sér geymsla: Er í kjallara hússins þar er lakkað gólf og hillur á veggjum, birt stærð hennar er 7,2 m
2.
Annað:
- Bílastæði í kjallara fylgir eigninni.
- Fyrir 55 ára og eldri.
- Vagna- og hjólageymsla í sameign.
- Sameiginlegt samkomurými/fundarherbergi er á 1. hæð með sjónvarpi, kaffivél og öðru tilheyrandi sem hægt er að leigja fyrir hin ýmsu veisluhöld.
- Gólfhiti.
- Ljósleiðari.
- Örstutt í matvöruverslun.
Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða fsfasteignir@fsfasteignir.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is
Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, fridrik@fsfasteignir.is
Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, svala@fsfasteignir.is
Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, sigurpall@fsfasteignir.is
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf.
Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.