Fasteignaleitin
Opið hús:23. júlí kl 12:15-12:45
Skráð 13. júní 2025

Vetrarbraut 2-4 íb204

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
144.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
144.900.000 kr.
Fermetraverð
1.004.854 kr./m2
Fasteignamat
114.900.000 kr.
Brunabótamat
105.500.000 kr.
Mynd af Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2025
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Bílastæði
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534866
Landnúmer
233972
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 4ra herbergja íbúð með tvennar svalir, frístundaskúr og tvö bílastæði í bílakjallara!
Íbúð merkt:0204 skilast fullbúin án gólfefna og er alls 144,2fm að stærð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðar rýmið skráð 132,3fm og skiptist í anddyri, gestasalerni, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á svalir. Þrjú svefnherbergi, svalir út af hjónaherbergi, baðherbergi, sér þvottaherbergi og frístundarskúr í sameign merkt: 0065, skráð 11,9fm., ásamt tveimur bílstæðum í bílakjallara merkt: B18 og B28.   
Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Guðný Ösp, fasteignasali í GSM: 665-8909 eða gudny@fstorg.is


Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Almennar upplýsingar 
Vetrarbraut 2 - 4 er nýtt fjölbýlishús í nýju og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði, Garðabæ. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, í svansvottunarferli, með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.
Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum.  Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Sjá nánar skilalýsingu*

Utanhússfrágangur
Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir.
Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan.
Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð.

Innanhússfrágangur 
Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna.
Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum.
Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir.
Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka.
Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60 
Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum.
Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð.
Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar.

Tæki og búnaður
Eldhústæki (flest frá Siemens):
Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél.
Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir.

Sameignir:
Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta.
Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu.
Hjólageymsla: Í hvoru húsi.
Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar.

Hönnun og framkvæmdir
Arkitektar: Arkís arkitektar.
Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll.
Sjá nánar skilalýsingu*
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534866
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.800.000 kr.
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534866
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
8
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.800.000 kr.

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47C
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Hjallabraut 45B
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Sæból 7
Skoða eignina Sæból 7
Sæból 7
350 Grundarfjörður
133.2 m2
Raðhús
413
413 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 1
Bílastæði
Opið hús:27. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Asparlaut 1
Asparlaut 1
230 Reykjanesbær
157.6 m2
Fjölbýlishús
423
570 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin