Helgafell fasteignasala kynnir til sölu mikið endurnýjað 260,5fm. raðhús með aukaíbúð við Fljótasel 22 í Reykjavík.
Eignin samanstendur af tveimur hæðum ásamt íbúð í kjallara með sér inngang og bílskúr.
Eignin skiptist í:91,1fm. aðalhæð með anddyri, stofu/borðstofu, eldhúsi, gestasalerni og þvottahúsi.
91,1fm. önnur hæð með fjórum svefnherbergjum, baðherbergi og sjónvarsrými.
57,3fm. íbúð í kjallara með anddyri, stofu, eldhúsi, baðherbergi og rúmgóðu svefnherbergi.
21fm. bílskúr.
Nánari lýsing:
Fyrsta hæð:Komið er inn í rúmgott flísalagt
anddyri með góðum skáp með speglahurð.
Inn af anddyri er nýlega uppfært
gestasalerni.
Komið er inn í stóra
stofu/borðstofu með nýlega lögðu harðparketi. Útgengt út á rúmgóðar svalir úr stofunni.
Eldhús er hálfopið við stofuna. Nýleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Flísar milli efri og neðri skápa. Span helluborð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Harðparket á gólfi.
Inn af eldhúsi er
búr/þvottahús með góðu skápaplássi vask og góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Efri hæð:
Hjónaherbergi með nýlegu harðparketi á gólfi og innbyggður skápur. Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir úr hjónaherberginu.
Barnaherbergi 1: Nýlegt harðparket á gólfi með tvöföldum skáp.
Barnaherbergi 2: Nýlegt harðparket á gólfi.
Sjónvarpshol er með nýlegu harðparketi á gólfi. Rúmgott rými sem nýtist vel. Rýmið er undir súð. En búið er að laga alla veggi þar og loft. Samkvæmt eiganda var komið samþykki til að lyfta þakinu og koma þá fyrir tveimur herbergjum í því rými. Líklega þarf að sækja aftur um það leyfi.
Baðherbergi er nýlega uppfært, flísalagt í hólf og gólf, sérstætt baðkar og sturtuklefi. Upphengt salerni, handklæðaofn, vaskur ásamt innréttingu.
Kjallari:
Anddyri með flísum á gólfi.
Hol og stofa með plastparket á gólfi.
Eldhús með góðri eldhúsinnréttingu og góðu skápaplássi.
Rúmgott svefnherbergi með plastparketi á gólfi.
Baðherbergi nýlega tekið í gegn, flísalagt í hólf og gólf og sturtuklefi.
Rúmgott
svefnherbergiKöld
Geymsla er við inngang við kjallaraíbúðina.
Bílskúr:Steypt gólf, ágætlega djúpur bílskúr með millilofti. 3ja fasa rafmagn og
tenging fyrir rafmagnshleðslustöð.
Fallegur afgirtur gróinn garður með stórum pall. Tengi og lagnir fyrir heitan pott í garðinum/pallinum.
Útgengt er í garðinn af fyrstu hæðinni.
Fallegt sameiginlegt útisvæði fyrir framan húsið með leiktækjum. Upphitaður göngustígur að húsinu.
Búið er að laga húsið bæði að innan og utan undanfarin ár.- Nýtt þak 2018
- Eldhús, baðherbergi á efri hæð og gestasalerni ásamt gólfefnum var allt uppfært 2022/2023
- Múrviðgert og málað 2022
- Nýir gluggar á suðurhlið 2022
- loft sléttuð og máluð 2022
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - sími: 566 0000Rúnar Þór Árnason, lgf., email: runar@helgafellfasteignasala.is