Fasteignaleitin
Skráð 27. mars 2026

Norðurnes 90

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
30 m2
1 Herb.
Verð
19.900.000 kr.
Fermetraverð
663.333 kr./m2
Fasteignamat
3.230.000 kr.
Mynd af Hrannar Jónsson
Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2331970
Landnúmer
217142
Húsgerð
Jörð/Lóð
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Gallar
Húsið er ekki teiknað, var reist án byggingarleyfis og mun því nýr eigandi þurfa að ganga frá þeim málum við byggingarfulltrúa og sveitarfélagið.

 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Mjög smekklegt lítið sumarhús á eignarlóð í Kjós, aðeins 35 min akstur frá Höfuðborgarsvæðinu á lokuðu svæði með símahliði.

Um er að ræða 30 fm hús sem er óskráð og stendur á steyptum súlum með smá geymslu/kjallara undir.

Skv. deiliskipulagi má reisa allt að 120 fm frístundarhús á lóðinni ásamt allt að 30 fm gestahúsi.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is

Húsið var byggt 2025 og samanstendur af forstofu, eldhúsi, baðherbergi með sturtu og rúmgóðri stofu með kamínu, svefnsófa og borðstofuborði.

Húsið er kynnt með kamínu, rafmagn er frá sólarsellum og neysluvatn hitað með gasi.

Hægt er að taka inn rafmagn frá Rarik.

Einnig er steypt aukahús með saunabaði öðru meginn og klósetti hinu meginn (stóð til að setja upp sturtu þeim meginn líka en hefur ekki verið gert.

Einnig er búið að reisa úr timbri eldstæði/hring, byrjað að hlaða upp setusvæðum með útsýni nær árbakka og töluvert af plöntum/trjám verið gróðursett.

Lóðin er 5242 fm eignarlóð sem stendur syðst í sumarhúsabyggðinni með óheft útsýni móti suðri til fjalla og meðfram henni rennur lækur/á.

Greitt er í sumarhúsafélag sem sér um vegi og aðgangshlið á svæðinu, ávallt er snjómokstur yfir vetur og vel haldið á málum.

2025 var greitt í félagið 70.000 í árgjald og 20.000 kr í framkvæmdarsjóð, innifalið er snjómokstur fös og sun, alla jóla- og páskadaga ásamt rekstri á símahliði og vatnsveitunni, sem er í eigu félagsins.

Nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.





 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
30 m2
Fasteignanúmer
2331970

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vaðlabyggð 8
Skoða eignina Vaðlabyggð 8
Vaðlabyggð 8
606 Akureyri
3,814 m2
Jörð/Lóð
5 þ.kr./m2
17.500.000 kr.
Skoða eignina Vaðlabyggð 7
Skoða eignina Vaðlabyggð 7
Vaðlabyggð 7
606 Akureyri
Jörð/Lóð
17.500.000 kr.
Skoða eignina Kvennagönguhólar 22
Kvennagönguhólar 22
805 Selfoss
Jörð/Lóð
Fasteignamat 2.430.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Brókarstígur 5
Skoða eignina Brókarstígur 5
Brókarstígur 5
311 Borgarnes
Jörð/Lóð
Fasteignamat 2.300.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin