LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4 herbergja 102.0 fm íbúð á 8 hæð við Espigerði 2 í 108 Reykjavík. Íbúðin er endaíbúð með hornsvölum sem vísa í suður og vestur með frábæru útsýni til fjalla og sjávar. Virkilega snyrtileg sameign er í húsinu með leikherbergi fyrir yngstu börnin, hjólageymslu með eftirlitsmyndavélakerfi og sameiginlegum svölum á efstu hæð. Íbúðin er skráð 4ra herbergja en eitt svefnherbergi hefur verið fjarlægt og stofa stækkuð í staðin. Hæglega er hægt að breyta því til baka. Hleðslustöðvum hefur nýlega verið komið fyrir á bílastæðum sem fylgja húsinu.
Birt stærð eignar er 102.0 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 7,1 fm geymsla.
Eignin skiptist í eldhús, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Allar frekari upplýsingar veitir Arinbjörn Marinósson í síma 822-8574 eða arinbjorn@fastlind.is- Frábært útsýni af 8. hæð
- Húsi hefur verið mjög vel við haldið í gegnum tíðina
- Virkilega snyrtileg og mikil sameign
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og parket á gólfi
Eldhús snyrtileg innrétting með eldhúseyju sem er með stein á borði og vel með förnum eldhústækjum
Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými með glugga á tvo vegu og frábæru útsýni. Parket er á gólfi og er útgengt á svalir sem vísa í suður og vestur.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi
Barnaherbergi með parket á gólfi
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með walk-in sturtu, innréttingu og upphengdu salerni
Þvottahús er innan íbúðar, gengið inn í það frá eldhúsi
Geymsla er staðsett í sameign
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.-------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.