Eignaver 460-6060
Laugargata 1 Akureyri. *** Opið hús fimmtudaginn 24.09.2026 frá 16:15 - 17:00 ***
Mikið endurnýjað, virðurlegt og fallegt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt stakstæðum bílskúr á frábærum stað á Brekkunni. Húseignin er samtals 208,4 fm. á rúmóðri lóð.
Nánari lýsing:
Aðalinngangur í húsið er að vestan verðu og þar er gengið upp nokkrar tröppur og komi inn á efri hæð hússins.
Efri hæð:
Forstofan, þar eru flísar á gólfi með gólfhita, fatahengi.
Eitt svefnherbergi er á efri hæð, mjög rúmgott með parket á gólfi og þar er hægt að fara upp á háaloft.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu frá TAK innréttingum,flísar á gólfi með gólfhita og málað á milli skápa.
Snyrting, flísar á gólfi með gólfhita og upphengt WC.
Borðstofa, parket á gólfi. Vængjahurð er á milli stofu og borðstofu.
Stofan, er rúmgóð og björt, parket á gólfi og þar er arinn.
Frá stofu er farið inn í stigahús sem byggt var við húsið og þar liggur stigi niður á jarðhæð, þar eru flísar á gólfi með gólfhita og hurð út í garð.
Neðri hæð:
Forstofa, flísar á gólfi.
Gangur, parket og rúmgóður fataskápur.
Þrjú svefnherbergi eru á neðri hæð, parket á gólfum herbergja og fatatskápur í þeim öllum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og á veggjum að mestu, upphengt WC, innrétting og sturta og gert er ráð fyrir baðkari ( lagnir til staðar )
Þvottahús, þar er fín innrétting og flísar á gólfi.
Bílskúrinn er 25,2 fm. og er sambyggður nærliggjandi húsi, nýtt gólf í bílskúr með gólfhita, nýr gluggi, gönguhurð og rafknúin bílskúrshurð. Setja þarf dúk eða þakpappa á þakið.
Annað:
- Frábær staðsetning, örstutt í Brekkuskóla, Sundlaug Akureyrar, Menntaskólann og Sjúkrahúsið.
- Einnig er miðbærinn í göngufæri.
- Tvö bílastæði eru við bílskúrinn og eitt stæði norðan við húsið. Snjóbræðsla er í bílastæðinu norðan við húsið.
- Heimreið við bílskúrinn var malbikuð og sett niðurföll, frárennslislagnir og dælubrunnur.
- Stór, gróinn og skjólgóður garður og í honum er m.a. jarðarberjabeð ofl.
- Góð verönd er í norð-austur horni garðsins.
- Mikið endurnýjað og falleg hús.
- Neðri hluti trappa að aðalinngangi voru steyptar nýjar og með snjóbræðslu.
- Þakið var framlengt yfir steyptu þakrennurnar og nýtt galvansera bárujárn var sett og nýjar þakrennur.
- 15 fm. geymsluskúr er á milli verandar og bílskúrs, einangraður og með rafmagni.
- Hleðslutöð fyrir rafbíl er á stæði norðan við húsið.
Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is