Fasteignaleitin
Skráð 23. júlí 2026

Valshlíð 5 - íbúð 413

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
115.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
108.675.000 kr.
Fermetraverð
943.359 kr./m2
Brunabótamat
66.450.000 kr.
Mynd af Aron Már Smárason
Aron Már Smárason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
4. hæð · efsta
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532694
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 5 – Íbúð 413.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Afhending hafin.

S8-Sameign í boði:

  • Þú fjármagnar 75% — 108.675.000 kr. (lágmark 75%)
  • S8 ehf. á 25% hlut í allt að 10 ár
  • Lágmark 10% eigið fé (10.867.500 kr.)
  • 0% leigugreiðslu í allt að 36 mánuði ef þú nýtir kauprétt innan þann tíma.
  • Nánari upplýsingar á s8.is/joint

Fáðu nánari upplýsingar á Sölusíða eignarinnar. Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 5832000. Hafðu samband og bókaðu skoðun hjá okkur.

4-5 herbergja horníbúð á efstu hæð í Hlíðarhorni, 115,2 fm (þar af 7,9 fm geymsla í kjallara). Íbúðin er lýst á þrjá vegu. Skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á 18 fm þaksvalir (suður/vestur/norður) með tengi fyrir heitan pott, auk útgengis á suðursvalir, gang, 3-4 svefnherbergi, baðherbergi og sérstakt þvottaherbergi. Skv. teikningu er möguleiki á að bæta við 5. herbergi — þá minnkar alrýmið. Íbúðin afhendist með innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt, ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Hlíð 2.

Í anddyri er góður fataskápur. Rúmgott alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á þaksvalir og suðursvalir. Svarbrún eldhúsinnrétting með viðaráferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa, ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir. Hjónaherbergi með skápum. Tvö svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með walk-in sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar, svarbrún innrétting með viðaráferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi með vaski, ljósri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Sérgeymsla í kjallara (0070). Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingu þar sem íbúar hafa forgang.

Verð miðast við Sameignaleið S8 ehf. – 75% kaup. Fullt verð: 144.900.000 kr.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindargata 39
Hleðslustöð
Skoða eignina Lindargata 39
Lindargata 39
101 Reykjavík
103.3 m2
Fjölbýlishús
312
1132 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 5
Efsta hæð
Skoða eignina Valshlíð 5
Valshlíð 5
102 Reykjavík
115.2 m2
Fjölbýlishús
413
943 þ.kr./m2
108.675.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 5
Skoða eignina Valshlíð 5
Valshlíð 5
102 Reykjavík
111.6 m2
Fjölbýlishús
413
1012 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 5 - íbúð 315
Valshlíð 5 - íbúð 315
102 Reykjavík
111.6 m2
Fjölbýlishús
413
1012 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin