Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Grenigrund 22, Selfossi. Vandað steinsteypt raðhús í grónu hverfi. Hellulögð og steinsteypt innkeyrsla með hitalögnum. Steypt verönd er framan við hús með skjólveggjum. Á baklóð er timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.Steinsteypt 147 fm raðhús með sambyggðum bílskúr. Húsið er byggt árið 1999. Að utan er húsið klætt með duropal klæðningu. Aluzink er á þaki. Grasflöt er framan við hús með fánastöng. Hekk á lóðarmörkum. Gróin og snyrtileg lóð.
Flísalögð forstofa, skápur.
Eldhús og stofa er parketlagt, þar eru upptekin panilklædd loft. Eldhúsinnrétting, hvít/maghony innrétting með eyju. Flísar á milli skápa. Svalahurð er út á steypta verönd.
Þrjú parketlögð svefnherbergi öll með skápum. Upptekin panilklædd loft.
Baðherbergi er flísalagt gólf og veggir þar er innrétting og sturtuklefi. Þakgluggi er á baði.
Þvottahús er flísalagt og þar er vinnuborð.
Innangengt er úr forstofu í bílskúr. Geymsla með glugga innaf bílskúr.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 steindor@husfasteign.is ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.