Betri stofan fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel skipulögð og rúmgóð 155,9 fm 4ra herbergja íbúð með sér þvottahúsi innan íbúðar á efstu hæð með bílskúr í lyftufjölbýli við Litlakrika 2a, 270 Mosfellsbæ.
Eignin er skráð 155,9m2, þar af íbúð 113,6 m2, geymsla 12,2 m2 og bílskúr 30,1 m2
Í eigninni eru 3 góð svefnherbergi með flottu útsýni yfir Esjuna, eldhús, stofa, borðstofa, baðherbergi, þvottahús og svalir til suðurs. Eigninni fylgir bílskúr og geymsla sem innangengt er úr sameign.
Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar og bóka skoðun: Telma Rut Frímannsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 772 3555, tölvupóstur telma@betristofan.is.Komið er inn í forstofu og þaðan í opið alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúskróki á hægri hönd. Til vinstri er svefnherbergisgangur og baðherbergi. Þvottahúsið er aðgengilegt úr eldhúsi og anddyrinu. Útgengt á svalir úr borðstofunni.
Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð og með góðum skáp.
Eldhús er með fallegri innréttingu og flísum á gólfi. Gott skápa og vinnupláss.
Þvottahús er inn af eldhúsi.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi í opnu rými með eldhúsi. Parket er á gólfi og útgengi á suður svalir.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, góðum fataskápum og flottu útsýni yfir Esjuna.
Herbergi II-III eru bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi Með fallegri innréttingu og fínu skápaplássi. Baðkari, sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi er með aðgengi bæði frá eldhúsi og forstofu. Flísar á gólfi og skolvaskur í innréttingu. Þvottavélar í vinnuhæð.
Bílskúr með innkeyrsluhurð. Þaðan er gengið inn í geymslu sem síðan gengur inn á sameignar gang. Bílskúrinn er 30,1fm
Nánari upplýsingar veitir:Telma Rut Frímannsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 772-3555, eða telma@betristofan.is
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali, í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is