Fasteignaleitin
Skráð 4. júlí 2026

Hafnarbraut 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
96.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
828.838 kr./m2
Brunabótamat
59.720.000 kr.
Byggt 2021
Jarðhæð
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
251084919
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

*** Skipti möguleg á stærri eign ***
Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali (774-7373 / ragnar@heimili.is), kynna í einkasölu virkilega smart 3ja herbergja 96,4 fm. íbúð á 1. hæð á Hafnarbraut 12F -  vinsælum stað á Kársnesinu.  Er þetta íbúð nr. 111, endaíbúð með sérinngangi auk geymslu og merktu bílastæði í kjallara.  Íbúðin telur forstofuhol, stofu og eldhús í björtu opnu rými, tvö stór svefnherbergi og rúmgott baðherbergi þar sem jafnframt er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.  Húsið er byggt 2021 og íbúðin öll sem ný.  Stór inngarður gefur eignini aukið gildi. 


Gluggar á þrjá vegu og svalir snúa inn í skjólsælan garðinn.  Auk þess að fara inn um aðal inngang, eða með lyftu úr bílgeymslu, má nýta stiga úr garðinum inn á hæðina og að sérinngangi íbúðarinnar, sem er ákfalega þægilegur kostur.

Komið er inn í rúmgott forstofuhol með góðu skápaplássi. Úr holinu er gengið inn í öll rými íbúðarinnar;
Stofu, borðstofu og eldhús í björtu alrými og þaðan út á góðar svalir.  Góð innrétting í eldhúsi, sem er virkilega smart, hangandu háfur og gert ráð fyrir barstólum.
Nægt rými fyrir borðstofuborð og stofu.
Stórt hjónaherbergi með góðu skápaplássi og gott barnaherbergi með skáp.
Baðherbergið er einnig rúmgott, flísar á gólfi og veggjum að hluta, góð innrétting, upphengt salerni og stór flísalögð "walk-in" sturta.   

Sérgeymsla íbúðar 7,8 fm er inn af merktu bílastæði.  Hjólageymslur í sameign og aðgengi að stórum inngarði.

Eigendur leita eftir stærri eign - skipti möguleg.

Stutt er í leik- og grunnskóla, auk þess sem njóta má gönguleiða við sjávarsíðuna og bryggjusvæðis í uppbyggingu, að ógleymdri brúarsmíði sem mun auðvelda allar samgöngur.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lækjasmári 4
Skoða eignina Lækjasmári 4
Lækjasmári 4
201 Kópavogur
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
807 þ.kr./m2
77.700.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 10
Skoða eignina Gullsmári 10
Gullsmári 10
201 Kópavogur
104.9 m2
Fjölbýlishús
413
809 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
95.4 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
96 m2
Fjölbýlishús
212
1145 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin