Mjög gott fjölskylduhús í Hraunbæ – 187,1 m² m/bílskúr ásamt rúmgóðum sólskála og stórri timburverönd. Sigrún Matthea hjá RE/MAX kynnir: Gott og vel skipulagt fjölskylduhús í Hraunbær 89, í svokölluðu Garðhúsahverfi. Eignin býður upp á rúmgóðar vistarverur, bjarta stofu með arni, veglegan sólskála og stóra timburverönd. Fjölbreyttir nýtingarmöguleikar eru í húsinu og möguleiki á að fjölga svefnherbergjum.
Viltu fá söluyfirlit sent strax opna hér
Hér er hægt að skoða eignina í 3D
Eign í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Árbæ þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir og íþróttastarf. Elliðaárdalurinn er í nágrenninu með fjölbreyttum útivistarmöguleikum og fallegum göngu- og hjólaleiðum.Samkvæmt skráningu HMS er íbúðarhluti eignarinnar stærð 166,4 m² og bílskúr stærð 20,7 m², samtals stærð 187,1 m². Til viðbótar er rúmgóður sólskáli sem er ekki talinn með í skráðri fermetratölu eignarinnar.
Falleg fjölskyldueign með mikla möguleika sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar veitir: Sigrún Matthea, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX sími: 695-3502 Netfang: sms@remax.isNánari lýsing eignarAnddyri: Flísar á gólfi.
Forstofuherbergi: Viðarparket á gólfi. Herbergi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Gestasalerni: Salerni, lítil handlaug og flísar á gólfi.
Hol: Rúmgott hol sem er í dag nýtt sem borðstofa. Viðarparket á gólfi.
Eldhús: Eldri eldhúsinnrétting gott skápa og vinnupláss, korkur á gólfi. Inn af eldhúsi er búr.
Búr: Hillur á veggjum, dúkaflísar á gólfi.
Stofa: Stór og rúmgóð stofa
með fallegum arni og viðarparketi á gólfi. Inn af stofunni er aukarými sem nýta mætti sem skrifstofu, sjónvarpsherbergi eða svefnherbergi eftir þörfum.
Úr stofunni er gengið út í veglegan sólskála og þaðan áfram út á stóra timburverönd.Sólskáli: Rúmgóður sólskáli sem er skemmtileg viðbót við íbúðarrýmið og tengir húsið vel við útisvæðið. Þaðan er útgengt á timburveröndina.
Gangur: Gengið í svefnherbergi, baðherberi og þvottaherbergi / geymslu, viðarparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Fataskápar viðarparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Mjög rúmgott svefnherbergi sem áður voru
tvö aðskilin herbergi, harðparket á gólfi.
Möguleiki er á að skipta því aftur upp í tvö svefnherbergi.Baðherbergi: Eldri innrétting, baðkar með sturtuaðstöðu og salerni. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottaherbergi: Innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur og flísar á gólfi.
Geymsla: Góð geymsla með hillum á veggjum og flísum á gólfi. Úr geymslunni er aðgengi upp á háaloft, auk þess sem útgengt er út á lóðina úr geymslu.
Bílskúr: Rafmagn, heitt og kalt vatn er í bílskúr. Samkvæmt skráningu HMS er bílskúrinn 20,7 m².
Timburverönd og lóð: Stór timburverönd með markísu, grillhúsi og gróðurhúsi. Skemmtilegt útisvæði sem býður upp á góða möguleika til útiveru og samverustunda.
Framkvæmdir samkvæmt eiganda
Þak endurnýjað árið 2005
Skóplagnir endurnýjaðar,
Hiti lagður í gangstétt fyrir framan hús. Hér er um að ræða góða fjölskyldueign með rúmgóðum vistarverum, sólskála og skemmtilegu útisvæði. Eign sem býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fjölskylduna á góðum stað í Árbæ.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Sigrún Matthea, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX
Sími: 695-3502
Netfang: sms@remax.is
Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ? og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is eða sími 695-3502 Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.