Fasteignaleitin
Skráð 13. ágúst 2026

Melhæð 6

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
467 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
315.000.000 kr.
Fermetraverð
674.518 kr./m2
Fasteignamat
280.850.000 kr.
Brunabótamat
260.900.000 kr.
Mynd af Marta Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Lögfræðingur
www.sunnafast.isEignalisti
Byggt 1991
Garður
Svalir
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2071844
Landnúmer
119285
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott. Ekki vitað um vandamál.
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Gott. Ekki vitað um vandamál.
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Gott. Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Snyrtilegar
Upphitun
Gott
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Seljendur munu skipta um gluggastykki í sjónvarpsstofu í heild fyrir afhendingu auk allra glugga í arinstofu á jarðhæð. 
Sunna fasteignasala og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna í einkasölu Melhæð 6, Garðabæ.

**ATH. Seljendur skoða skipti á öðrum eignum**

Um er að ræða afar glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum sem er tæplega 500 fermetrar að stærð. Húsið er með 5 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, 2 gestasalernum, 3 veglegum stofum, tvöföldum bílskúr, auk sólskála. Þá eru tvö anddyri í húsinu.
Neðri hæðin er 375 fm, þar af er bílskúrinn 85 fm. Efri hæðin er skráð 92 fm, en grunnflötur þeirrar hæðar er töluvert stærri.

Nánari lýsing: 
Jarðhæð: 
Bæði anddyri eru glæsileg og mjög rúmgóð með stórum fataskápum. Flísar eru á gólfum og gólfhiti. 
Verulega rúmgott eldhús með eyju, steinn er á borðplötum og búr er innaf eldhúsi. 
Tvennar glæsilegar stofur eru á hæðinni, auk sólskálans en þar er sturta, heitur pottur og saunaklefi. Stofurnar tvær eru annars vegar sérlega glæsileg borðstofa með mikilli lofthæð og hins vegar stór arinstofa með fallegri gluggasetningu.
Hjónasvítan er með fataherbergi og stóru baðherbergi með bæði sturtu og baðkari. 
Þá eru tvö salerni á hæðinni, til viðbótar við baðherbergið sem er í hjónasvítunni. 

Efri hæð:
Úr borðstofunni er hringstigi sem leiðir upp á efri hæð hússins. 
Þar er sjónvarpsstofa með aðgengi út á svalir sem snúa í suður. Einstakt útsýni er af svölunum. Arinn er í sjónvarpsstofu.
Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi, öll með sér svalir. 
Baðherbergið á hæðinni er með góðri innréttingu og sturtu.
Þá er þvottahús á efri hæðinni og lítil geymsla. 

Bílskúrinn er tvöfaldur og er 85 fm. Hann er með góðum gluggum og steyptu gólfi. ** Mjög auðvelt er að búa til íbúð í bílskúrnum sem væri með sérinngangi. Tvennar mögulegar útfærslur eru færar en önnur þeirra myndi skila um 100 fm aukaíbúð með salerni. **

Allar gluggakistur hússins eru sérlega djúpar og flísalagðar. Á stofum, eldhúsi og herbergjum er gegnheilt parket. Flísar eru á votrýmum og forstofum. Gólfhiti er á jarðhæðinni. Ofnar eru á annarri hæð. 
Eignin er staðsett innst í botnlanga og er með bílastæði fyrir 4-5 bíla.  

Þetta er verulega vönduð eign á frábærum stað í Garðabæ þar sem hvergi hefur verið til sparað við efnisval og frágang. Áhugasömum er bent á að bóka skoðun. Eignin verður eingöngu sýnd í einkaskoðunum. 

Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/11/2020142.450.000 kr.136.000.000 kr.467 m2291.220 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ögurás 14
Heitur pottur
Skoða eignina Ögurás 14
Ögurás 14
210 Garðabær
140.8 m2
Raðhús
524
994 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 39
Diddi_vefur (42).jpg
Skoða eignina Vorbraut 39
Vorbraut 39
210 Garðabær
270 m2
Raðhús
634
848 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsbrún 6
Á einni hæð
fossvogsbrún6_adalmynd.jpg
Skoða eignina Fossvogsbrún 6
Fossvogsbrún 6
200 Kópavogur
151.4 m2
Einbýlishús
513
822 þ.kr./m2
124.500.000 kr.
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bílskúr
Skoða eignina Bleikjukvísl 2
Bleikjukvísl 2
110 Reykjavík
420.9 m2
Einbýlishús
1035
520 þ.kr./m2
219.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin