Fasteignaleitin
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 9. okt. 2026

Skeiðarvogur 141

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
163.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.600.000 kr.
Fermetraverð
761.614 kr./m2
Fasteignamat
118.750.000 kr.
Brunabótamat
74.200.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
http://valholl.isEignalisti
Byggt 1955
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2022018
Landnúmer
105378
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta, sjá upplýsingablað seljenda
Raflagnir
Endurnýjað að hluta, sjá upplýsingablað seljenda
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta, sjá upplýsingablað seljenda
Gluggar / Gler
Endurnýjað árið 2020 á suðurhlið. Upprunalegt á norðurhlið
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá upplýsingablað seljenda.
Gallar
Sjá upplýsingablað seljenda.
Valhöll kynnir töluvert endurnýjað og vel skipulagt raðhús með aukaíbúð við Skeiðarvog 141 í Reykjavík. Fyrir aftan húsið er skjólsæll og gróin suðurgarður með hellulagðri verönd og grasbala.

Húsið er staðsett á eftirsóttum stað nálægt Laugardal. Stutt í alla verslun og þjónustu, Sólheimabókasafn og leikskólann Langholt. Vogaskóli handan götunnar sem og Menntaskólinn við Sund. Skeifan með fjölda veitingastaða og verslana í göngufæri.


Eignin getur verið afhent við undirritun kaupsamnings. Íbúðin í kjallaranum er í útleigu til 2. júní 2026 og mun kaupandi yfirteka þann leigusamning.

Heildarstærð hússins er 163,6 fm skv. skráningu hjá HMS. Kjallari 57,7 fm., miðhæð 58,8 fm og ris 47,1 fm.

Skv. seljendum hefur verið farið í eftirfarandi framkvæmdir á eigninni síðan 2020:
- Ný gólfefni sett á allt húsið.
- Gólfhiti settur í forstofu á miðhæð og snyrtingu/þvottahús.
- Nýtt eldhús og tæki sett upp.
- Salerni/þvottahús útbúið innaf anddyri.
- Vatns- og frárennslislagnir endurnýjaðar að hluta.
- Skipt um 5 glugga á suðurhlið (í svefnherbergjum á efri hæð, borðstofuglugga á miðhæð og herbergisglugga í kjallara).  Stofugluggi á miðhæð og stofugluggi í kjallara voru nýlegir og var ekki skipt um þá.
- Nýtt handrið sett á svalir.
- Aukaíbúð útbúin í kjallara.
- Suðurhlið húss og gafl á austurhlið bollaslípuð og sprunguviðgerð. Hús málað báðum megin.

Nánari lýsing:

Miðhæð:
Anddyri: með fatahengi og flísum á gólfi. Hiti í gólfi.
Stofa og borðstofa: eru í opnu alrými með útgengi í fallegan og gróinn garð með hellulagðri verönd.
Eldhús: er opið við stofu með fallegri nýlegri innréttingu og nýlegum tækjum. Innbyggður ísskápur, frystiskápur og uppþvottavél. Mjög gott vinnupláss.
Salerni / þvottahús: er inn af anddyri með upphengdu salerni, innréttingu, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og flísum á gólfi. 
Geymsluskápur: er undir stiga innaf anddyri þar sem áður var gengið niður í kjallara. Hægt væri að opna aftur niður í kjallara en þar hefur verið útbúin aukaíbúð.

Efri hæð:
Hjónaherbergi: er rúmgott og bjart með útgengi á svalir. 
Svefnherbergi II: með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III: með parketi á gólfi.
Baðherbergi: með sturtuklefa, handklæðaofni, og flísum á gólfi.

Aukaíbúð í kjallara:
Anddyri: með flísum á gólfi. Gengið er niður tröppur í íbúð.
Svefnherbergi: rúmgott með fastaskápum og parketi á gólfi.
Eldhús: með snyrtilegri hvítri innréttingu, ofni í vinnuhæð, helluborði. Tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa: rúmgóð með parketi á gólfi.
Salerni: er undir stiga. Sturta og tengi fyrir þvottavél eru í rými innaf gangi.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/11/201958.550.000 kr.64.000.000 kr.163.6 m2391.198 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðalækur 69
Bílskúr
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Rauðalækur 69
Rauðalækur 69
105 Reykjavík
148,4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
808 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (301)
Bílastæði
Hraungata 7 (301)
210 Garðabær
158,6 m2
Fjölbýlishús
524
1071 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 14
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Axlarás 14
Axlarás 14
221 Hafnarfjörður
166,2 m2
Raðhús
423
810 þ.kr./m2
134.600.000 kr.
Skoða eignina DALAHRAUN 28
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina DALAHRAUN 28
Dalahraun 28
810 Hveragerði
166,7 m2
Raðhús
514
629 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin