Háborg fasteignasala og Katla kynna glæsilega íbúð á 3. hæð í nýju fjölbýlishúsi við Þjóðbraut 3. Í húsinu er lyfta og bílakjallari. Eignin er samtals 94,7 fm og skiptist í 84,6 fm íbúð og 10,1 fm sérgeymslu auk bílastæðis í kjallara.
Allar upplýsingar um eignina veitir: Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@haborg.is
Nútímaleg hönnun og gott skipulag. Húsið er vel staðsett miðsvæðis á Akranesi, stutt í alla almenna þjónustu.
Nánari lýsing á íbúð 301: Anddyri með fataskáp. Alrými með stofu og eldhúsi. Gengið er út á svalir úr alrými. Eldhúsinnrétting, AEG spanhelluborð og bakaraofn. Gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Svefnherbergi eru þrjú, í tveimur af þeim eru fataskápar. Baðherbergi, gólf er flísalagt og veggir að hluta. Vaskinnrétting, speglaskápur með Led ljósum. Sturta, upphengt salerni, Grohe blöndunartæki. Þvottaaðstaða er á baðherbergi. Hiti er í gólfum á baðherbergi. Í kjallara er rúmgóð sérgeymsla, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk stæðis í bílageymslu. Íbúðinni verður skilað samkvæmt skilalýsingu. Afhending getur farið fram fljótlega.
Allar upplýsingar um eignina veitir Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@haborg.is
Byggingarfélagið Bestla ehf. er framkvæmdaaðili og arkitektar eru Krark Arkitektar. Húsið er fimm hæða fjölbýlishús með 38 íbúðum af fjölbreyttum stærðum. Í húsinu er stiga- og lyftuhús og aðgengi að íbúðum af svalagöngum. Í kjallara er bílageymsla með 26 stæðum, sérgeymslur fyrir hluta íbúða ásamt hjóla- og vagnageymslu. Húsið er staðsteypt og klætt báruáli. Gluggar og svalahurðir eru álklæddir timburgluggar. Lóð er frágengin samkvæmt teikningum Landslags ehf., með hitalögnum í helstu gönguleiðum og bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Rafhleðslustöð er uppsett og gert ráð fyrir fleiri. Íbúðir afhendast fullbúnar án gólfefna (nema votrými eru flísalögð). Lofthæð er um 2,58 m og veggir og loft máluð í litnum “Soft Sand” frá Flügger. Innréttingar eru frá Voke-3 og eldhústæki frá AEG. Gufugleypir er ýmist innbyggður eða eyjuháfur. Ekki fylgja ísskápur né uppþvottavél en gert er ráð fyrir innbyggingu þeirra. Baðherbergi eru flísalögð að hluta með flísum frá Álfaborg. Baðinnréttingar eru í dökku viðarútliti og tæki frá Grohe. Athugið: Íbúðin er afhent án gólfefna. Gólfefni og húsgögn á myndum eru til kynningar.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.