Skrifstofurými til leigu við Stórhöfða 17 – kaffi og internet innifaliðHelgafell fasteignasala kynnir til leigu um 25fm. notalegt skrifstofurými undir súð á annarri hæð (Stórhöfðamegin) Stórhöfða 17 í Reykjavík. Rýmið gæti hentað vel fyrir tvo til fjóra aðila sem vilja deila vinnuaðstöðu, hvort sem er fyrir lítið fyrirtæki eða sjálfstætt starfandi einstaklinga.
Sýnilegir viðarbitarnir og hallandi loftið gefa rýminu hlýlegt yfirbragð. Ljóst viðaráferðargólf er á rýminu og möguleiki á fjölbreyttri uppröðun vinnustöðva eftir þörfum leigjenda.
Innifalið í leigu:- Aðgangur að sameiginlegri kaffiaðstöðu.
- Kaffi.
- Internettenging.
Hlýleg vinnuaðstaða fyrir einstakling eða einstaklinga sem vilja koma sér vel fyrir.
Margskonar rekstur er í húsinu s.s. veitingastaður, tannlæknar, tölvuþjónusta og fl.
Ætlunin er að loka bilinu með glerþyljum til að aðskilja það frá skrifstofunni á neðri hæðinni.
Annað bil sem er lokuð skrifstofa með gleri er líka til leigu í sama rými.
Meðfylgjandi tölvuunnar myndir sýna tillögu að nýtingu og húsgagnaskipan.Nánari upplýsingar
Helgafelli fasteignasala - sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason lgf., lglgm., email: runar@hfs.is