Fasteignaleitin
Skráð 19. júlí 2026

Keldugata 8

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
225.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
150.000.000 kr.
Fermetraverð
665.779 kr./m2
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
25086932
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt raðhús á pöllum við Keldugötu 8 í Garðabæ. Þetta er vandað og reisulegt hús með einstöku útsýni yfir Urriðavatn. Möguleiki er á 3-5 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum/snyrtingum.

Í húsinu er gert ráð fyrir gólfhita í íbúðarrými og tvívirku loftræstikerfi sem er innsteypt í loftplötur með inn- og útloftun.  Þak er steypt að hluta og að hluta úr timbursperrum.

Húsið er selt á núverandi byggingastigi, B1. Einnig er möguleiki er á að kaupa húsið fullbúið að innan með innréttingum, heimilistækjum og gólfefnum. 
Samtals er húsið 225,3fm, þar af 195,3fm íbúðarrými og 30fm innbyggður bílskúr. Auk þess er um 14 fm geymslurými við hlið bílskúrs sem ekki telst með í skráðri fermetratölu. Innangengt er úr bílskúr um þetta rými.

Bókið skoðun: Unnur s:8660507 eða unnur@gardatorg.is

Innra skipulag: anddyri, eldhús og borðstofa, rúmgóð stofa, 3–5 svefnherbergi, 2-3 baðherbergi/snyrtingar, þvottahús, geymslurými og innbyggður bílskúr.

Komið er inn í rúmgóð forstofu. Þar er herbergi og snyrting.
Eldhús og borðstofa eru á sama palli í björtu og fallegu rými. Þaðan er gegnið upp í stóra og fallega stofu.
Í stofu er mikil lofthæð sem gefur rýminu einstakan svip. Þar eru stórir og fallegir gluggar. Gengið út um rennihurð á rúmgóðar suðursvalir með glæsilegu útsýni.
Úr stofu er gengið upp í stórt svefnherbergi með sér baðherbergi, möguleiki á að hafa þar 2 herbergi.
Á jarðhæð er svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Rúmgóður bílskúr og geymslurými þar sem er innangengt í íbúðarhúsnæði.

Góð aðkoma er að húsinu, búið er að helluleggja bílaplan fyrir framan bílskúr og gert er ráð fyrir hitalögnum. Húsið er byggt á pöllum sem skapa opið og skemmtilegt skipulag með góðri tengingu milli rýma. Samverurýmin eru björt og rúmgóð með stórum gluggum sem snúa vel við sólu og bjóða upp á fallegt útsýni.

Urriðaholt er rólegt og eftirsótt hverfi í Garðabæ þar sem náttúra og mannlíf fara vel saman. Göngufæri er í Urriðaskóla, leikskóla, útivistarsvæði, golfvöll og náttúruperlur á borð við Urriðavatn og Heiðmörk. Urriðaholt er fyrsta hverfi landsins sem hlotið hefur vistvottun samkvæmt BREEAM Communities.

**Nokkrar myndir eru af sambærilegu fullbúnu húsi þar sem húsgögn voru sett inn á nokkrar myndir með aðstoð gervigreindar.  Þetta er gert til að aðstoða áhugasama kaupendur við að sjá fyrir sér möguleika sem húsnæðið býður upp á.

**Skipti á annarri eign koma til greina.

Nánari upplýsingar veita:
Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is
Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari, s: 898 3708 eða sigurdur@gardatorg.is


Garðatorg eignamiðlun er staðsett að Lyngási 11, Garðabæ

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Garðatorg eignamiðlun ehf
http://www.gardatorg.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Sæbólsbraut 27
200 Kópavogur
197.1 m2
Raðhús
624
791 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 10
Hleðslustöð
Skoða eignina Holtsvegur 10
Holtsvegur 10
210 Garðabær
108.5 m2
Fjölbýlishús
312
773 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
137.2 m2
Fjölbýlishús
322
1031 þ.kr./m2
141.500.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
95.4 m2
Fjölbýlishús
211
995 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin