Fasteignaleitin
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 23. okt. 2026

Hvassaleiti 73

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-103
258.1 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
198.000.000 kr.
Fermetraverð
767.145 kr./m2
Fasteignamat
159.650.000 kr.
Brunabótamat
119.900.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Húsið er eftir

Íslenskur módernismi og funkis.

Kemur fram í lýsingu eignarinnar.
Byggt 1962
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2031937
Landnúmer
107314
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Frárennslislagnir
2018 Rafmagnstafla endurnýjuð og nýjir vírar dregnir í húsið.
Gluggar / Gler
Árið 2021 var skipt um glugga og gler í eldhúsi. Árið 2026 var allt gler í vesturhlið húsins endurnýjað nema í veltigluggum í svefnherbergjum.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, tvennar svalir
Upphitun
Hefðbundið ofnakerfi, en gólfhiti í eldhúsinu, anddyri og borðstofu ásamt baðherberginu niðri. Árið 2018 voru allir ofnar endurnýjaðir.
Inngangur
Sérinngangur
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: 

Hvassaleiti 73, 103, Reykjavík.

Fallegt og vel skipulagt 258,1 m² raðhús í grónu hverfi, teiknað af arkitektinum Sigvalda Thordarsyni.

Húsið er á tveimur hæðum og einkennist af fallegri hönnun, skemmtilegri hæðarskiptingu og björtum, rúmgóðum alrýmum. Mikil lofthæð, stórir gluggar og síldarbeinaparket skapa hlýlega heild þar sem karakter hússins fær að njóta sín.

Eignin hefur verið endurbætt að miklu leyti á undanförnum árum, meðal annars með endurnýjun eldhúss, baðherbergja, gólfefna og lagna, auk umfangsmikils viðhalds utanhúss.

Húsið stendur á góðum stað í grónu íbúðarhverfi, með grænu svæði fyrir framan húsið til austurs og garði og verönd til vesturs. Innra skipulagið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, með rúmgóðum svefnherbergjum, tveimur stofum og fjölnotarými á neðri hæð.

Smelltu á hlekkinn til að skoða raðhúsið í þrívídd

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is


Nánari lýsing: Efri hæð

Aðalinngangur hússins er á efri hæð. Komið er inn í flísalagða forstofu með gólfhita, fatahengi og hillum. Inn af forstofu er endurnýjað gestasalerni með gólfhita, upphengdu salerni, handlaug og opnanlegum glugga.
Frá forstofu er gengið inn í bjart og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast á fallegan hátt. Síldarbeinaparket setur svip sinn á rýmin og undirstrikar karakter hússins.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2018 og er með rúmgóðri innréttingu, góðu skúffuplássi, spanhelluborði, innbyggðum ofni og uppþvottavél. Eldhúseyja veitir gott borðpláss og tengir eldhúsið við borðstofuna.
Borðstofan er rúmgóð, með góðu plássi fyrir stórt borð með fallega birtu frá gluggum.
Frá borðstofu er gengið upp eitt þrep í rúmgóða stofu þar sem mikil lofthæð og gólfsíðir gluggar. Þaðan er útgengt á svalir til vesturs.
Nokkrum þrepum ofar er sjónvarpsstofa með útgengi á rúmgóðar svalir til suðausturs.
 
Neðri hæð

Frá alrýminu liggur teppalagður stigi niður á neðri hæð hússins.
Á hæðinni eru fjögur svefnherbergi, auk fjölnotarýmis sem getur nýst sem svefnherbergi.
Hjónaherbergið er rúmgott og með sér fataherbergi. Við hlið þess eru tvö minni svefnherbergi sem hægt væri að sameina í eitt stærra herbergi.
Í hinum enda svefnherbergisgangsins er rúmgott herbergi með innbyggðum skápum og útgengi á svalir með þrepum niður á sólpall og út í garðinn.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2018 og er með flísum á gólfi og veggjum, gólfhita, baðkari, sturtu, upphengdu salerni, baðinnréttingu með skúffum, handklæðaofni og skáp.
Einnig er rúmgott fjölnota rými með þremur gluggum sem veita góða náttúrulega birtu. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, svo sem sjónvarpsstofu, leikherbergi, tómstundarými eða viðbótar svefnherbergi.
Sérþvottahús er með flísum á gólfi og opnanlegum glugga. Frá þvottahúsinu er aðgengi að geymslurými með takmarkaðri lofthæð undir bílskúrnum. Einnig er aðgengi að geymslunni um lúgu í gólfi bílskúrsins.
 
Bílskúr og útisvæði

Bílskúrinn er 24,8 m² með hita og rafmagni. Fyrir framan hann er malblikað bílastæði með snjóbræðslu.
Við aðkomu hússins er gróið útisvæði með grasflöt og gróðri. Vestan við húsið er garður með verönd, skjólvegg, grasflöt og trjám.
Útgengt er í garðinn frá svefnherbergi á neðri hæð.

Helstu endurbætur og viðhald

Núverandi eigendur keyptu húsið árið 2018 og hafa síðan ráðist í umfangsmiklar endurbætur og viðhald.
- 2018 Öll gólfefni endurnýjuð og síldarbeinaparket lagt á öll rými nema gestasalerni og baðherbergi sem voru flísalögð.
- 2018 Opnað var inn í eldhúsið og ný eldhúsinnrétting sett þar upp og lagðar nýjar vatns- og rafmagnslagnir
- 2018 Lagður var gólfhiti í svæðið við eldhúsið, anddyrið og borðstofuna ásamt baðherberginu niðri.
- 2018 Baðherbergið og salernið endurnýjað.
- 2018 Allir ofnar endurnýjaðir.
- 2018 Rafmagnstafla endurnýjuð og nýir vírar dregnir í húsið.
- 2019 var Thoroseal múrefni borið á þakið.
- 2020 sólpallur og skjólveggur reistur vestan meginn við húsið 
- 2021 var skipt um glugga og gler í eldhúsinu.
- 2021 var framhlið húsins múruð upp á nýtt og máluð.
- 2022 Útidyra- og bílskúrshurðir skafnar, pússaðar og olíubornar. Glerendurnýjað í kringum útidyrahurð.
- 2026 voru tröppur að framan og svalirnar báðar að aftan múruð upp á nýtt og allt húsið málað.
- 2026 var allt gler í vesturhlið húsins endurnýjað nema í þremur veltigluggum inn í svefnherbergjum.
- 2026 var StoCrete Betoflex borið á þakið.
- Skólp var fóðrað af fyrri eigendum.
 
Hvassaleiti 73 er falleg fjölskyldueign þar sem vel útfært skipulag, rúmgóð og björt alrými og sérstakur karakter hússins njóta sín vel.

Nánari upplýsingar veita: 
Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700
af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/07/201877.250.000 kr.74.900.000 kr.258.1 m2290.197 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Safamýri 33
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Safamýri 33
Safamýri 33
108 Reykjavík
84,8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
772 þ.kr./m2
65.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (111)
Hleðslustöð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
móa_vefur (4).png
Skoða eignina Laugaborg (111)
Laugaborg (111)
105 Reykjavík
119,5 m2
Fjölbýlishús
413
919 þ.kr./m2
109.800.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (107)
Hleðslustöð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
móa_vefur (4).jpg
Skoða eignina Laugaborg (107)
Laugaborg (107)
105 Reykjavík
108,2 m2
Fjölbýlishús
313
960 þ.kr./m2
103.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (110)
Hleðslustöð
Opið hús:25. okt. kl 13:00-13:30
móa_vefur (2).png
Skoða eignina Laugaborg (110)
Laugaborg (110)
105 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
312
988 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin