Fasteignaleitin
Skráð 12. júní 2026

Kastalagerði 6

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
267.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
168.000.000 kr.
Fermetraverð
627.568 kr./m2
Brunabótamat
118.420.000 kr.
Byggt 1964
Svalir
Fasteignanúmer
2063200
Húsgerð
Einbýlishús

Borg fasteignasala kynnir einbýlishúsið Kastalagerði 6, sem er glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum á eftirsóttum stað í fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi.

**Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð 206 fm. Fyrir liggja teikningar sem gefa til kynna að raunstærð eignarinnar sé um ca 267 fm. Mismunur á skráðum og raunverulegum fermetrafjölda hefur ekki verið staðfestur af HMS og er kaupendum bent á að kynna sér það sérstaklega.**

Um er að ræða bjarta og vel hannaða eign. Húsið stendur á góðri lóð, með skjólgóðum garði sem snýr til suðurs. Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og útivistarsvæði.

Aðalhæð/efri hæð
Gengið er inn að norðanverðu og þaðan upp stiga á efri hæð. Þegar upp er komið tekur við rúmgóður gangur sem tengir saman helstu rými hæðarinnar.
Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi, þar af veglegt hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Eldhúsið er rúmgott og búið vönduðum eldri (retró)-innréttingum sem gefa rýminu einstakan sjarma.  Þar er gott vinnupláss, mikið skápapláss og notalegur borðkrókur. Dúkur á gólfi.
Stofa/borðstofa mynda bjart og opið alrými með stórum gluggum. Frá stofunni er útgengt á suður sólríkar svalir. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er, búið salerni, baðkari, vask og vaskinnréttingu. Flísar á veggjum og gólfi. 

Neðri hæð/Auka íbúð
Á neðri hæð er um 66 fm tveggja herbergja íbúð sem nýtist vel sem útleigueining. Íbúðin er björt og vel skipulögð.
Eldhúsið er með upprunalegum og vönduðum eldri innréttingum. Stofan er björt en þaðan er útgengt út í garð sem skapar skemmtilega tengingu við garðinn. Baðherbergi er búið salerni, baðkari, vask og vaskinnréttingu. 

Þvottaðstaða/þvottahús sem er í inntaksrými, er sameiginlegt fyrir báðar íbúðir.  

Bílskúr
Bílskúr er skráður um 25fm þar er góð vinnuaðstaða. Fyrir utan bílskúr er pláss fyrir tvo til þrjá bíla. 

Að utan lítur húsið vel út en húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Um er að ræða vel umgengna eign sem ber eigendum sínum gott vitni.

Garður er stór og gróskumikill. 

Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Sæbólsbraut 27
200 Kópavogur
197.1 m2
Raðhús
624
791 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Fossvogsvegur 26
108 Reykjavík
242 m2
Fjölbýlishús
524
1384 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Fossvogsvegur 18
Fossvogsvegur 18
108 Reykjavík
241.8 m2
Fjölbýlishús
523
1385 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Lækjasmári 4
Skoða eignina Lækjasmári 4
Lækjasmári 4
201 Kópavogur
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
807 þ.kr./m2
77.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin