Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2026

Þverholt 31

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
115.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
97.900.000 kr.
Fermetraverð
849.826 kr./m2
Fasteignamat
87.000.000 kr.
Brunabótamat
78.520.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2501357
Landnúmer
224493
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Síðan húsið var byggt
Raflagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Síðan húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
í suðurátt með svalalokun
Upphitun
Sameiginlegur hiti
Inngangur
Sameiginlegur
Kvöð / kvaðir
Afsal 441-A-001366/2020
Lóðarleigusamningur 441-D-005031/2019 Lóðin er leigð til 75 ára frá 12.1.2017.- Almennar kvaðir samkvæmt uppdrætti og almenn kvöð um hvers konar lagnir bæjarsjóðs eða stofnana hans. kvaðir um bílastæði.
Yfirlýsing 441-B-009987/2016 Þverholt 27-29 er samtals 3.212 fm að stærð
Eignaskiptayfirlýsing 441-B-007843/2019 Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu - Matshluti 01 Eignaskiptayfirlýsing 441-B-001090/2021 Um eignarhlutföll o.fl. sjá eignarskiptayfirlýsingu
Birt stærð séreignar alls: 115,2m². Brúttórúmmál: 324.3m³. Eignin er 105,1m² íbúð á 4. hæð merkt 0404 ásamt 10,1m² geymslu í kjallara merkt 0013. Eigninni tilheyra 8,8m² svalir merktar 0414. Eigninni tilheyrir hlutdeild í inntaksrými (0024), gangi/stiga/lyftu (0025, 0116, 0212, 0312 og 0408), anddyri (0117) og hjól og vagnar (0118) í sameign sumra Y2.Eigninni tilheyrir reiknuð hlutdeild í sameign sumra Y2, sameign allra, húsi, lóð og hitakostnaði samkvæmt eftirfarandi hlutfallstölum: Hlutdeild í sameign sumra Y2: 10,82% Hlutdeild í sameign allra, húsi og lóð: 3,01% Hlutdeild í hitakostnaði: 2.89%
skv. deiliskipulagi fyrir svæði, þá verður byggt við suðurenda Þverholts 27, L-laga viðbygging upp á 3-4 hæðir og mun húsið þá heita Þverholt 25-31.
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Falleg og björt 3-4ra herbergja íbúð með glæsilegu útsýni á 4. hæð (efstu) ásamt rúmgóðu bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Þverholt 31 í Mosfellsbæ. Svalir með svalalokun í suðurátt. Eignin er skráð 115,2 m2, þar af íbúð 105,1 m2 og geymsla 10,1 m2. Eignin er teiknuð með þremur svefnherbergjum en búið er að sameina tvö svefnherbergi í eitt. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Eignin skiptist í tvö svefnherbergi (þrjú á teikningu) forstofu, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara.
Fallegar innréttingar og gólfefni. Húsið er mjög vel staðsett rétt við miðbæ Mosfellsbæjar og því stutt í alla þjónustu. Íbúðin er með HTH innréttingum, eldhústækjum frá AEG, eikar harðparketi á gólfum frá Birgisson ehf. en baðherbergisgólf eru flísalögð, hreinlætis- og blöndunartæki eru frá Tengi ehf. 


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og parketi á gólfi. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Falleg innrétting frá HTH. Í innréttingu er helluborð, vifta og blástursofn. Innbyggður ísskápur/frystiskápur og uppþvottavél. Skúffur eru í neðri hluta innréttingar með ljúflokun og skápar í efri hluta innréttingar. Úr rýminu er gengið út á svalir í suðurátt með svalalokun. 
Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, vegghengdu salerni, sturtu, handklæðaofni, baðinnréttingu og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Mikið skápapláss.
Svefnherbergi nr. 1 er mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi. Var teiknað sem tvö herbergi en var sameinað í eitt herbergi, hægt væri að breyta aftur í tvö herbergi þar sem það eru tvær hurðir inn í herbergið.
Svefnherbergi nr.2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Sérgeymsla er er í kjallara. Skráð 10,1 m2.
Bílastæði í bílageymslu merkt B18 fylgir eigninni. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl er í stæðinu.
Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. 

Annað: Innfelld lýsing er að hluta til inni í íbúðum. Lýsing er hönnuð og teiknuð af Lumex. Húsið er hannað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili er Byggingafélagið Bakki ehf. Húsið er einangrað og klætt að utan með fyrsta flokks álklæðningu frá Áltak. Lóð er með gróðri og leiktækjum og er snjóbræðsla í öllum helstu gönguleiðum. Sorpgámar eru djúpgámar sem eru staðsettir miðsvæðis á lóðinni. 

Verð kr. 97.900.000
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/10/201934.050.000 kr.61.000.000 kr.115.2 m2529.513 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2501357
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
18
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.470.000 kr.

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórunnarstræti 106
Þórunnarstræti 106
600 Akureyri
90.5 m2
Fjölbýlishús
312
602 þ.kr./m2
54.500.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106
Þórunnarstræti 106
600 Akureyri
85.3 m2
Fjölbýlishús
122
632 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Skólavörðustígur 26A
Skólavörðustígur 26A
101 Reykjavík
94.2 m2
Einbýlishús
322
839 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Rjúpufell 36
Bílskúr
Skoða eignina Rjúpufell 36
Rjúpufell 36
111 Reykjavík
295.5 m2
Raðhús
925
392 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin