Fasteignaleitin
Skráð 20. ágúst 2026

Úugata 20

Nýbygging • RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
231 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
159.900.000 kr.
Fermetraverð
692.208 kr./m2
Fasteignamat
125.950.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Byggt 2025
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524795
Landnúmer
233828
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir í suðurátt
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Áætlað fasteignamat fyrir eignina árið 2026 miðað við byggingarstig B4 er 153.800.000 kr.
Afsal, sjá skjal nr. 441-C-001306/2025.
Lóðarleigusamningur 441-A-004717/2024 Alm. kvaðir, sjá 3. gr.
Kvöð, sjá skjal nr. 411-S-010236/2013. Kvöð, sjá skjal nr. 441-D-006274/2021. Kvöð, sjá skjal nr. 441-F-001380/2023.
Eignin afhendist og selds fullbúin samkvæmt skilalýsingu seljanda á byggingarstigi B4 - Fullbúin eign.
Kaupanda er kunnugt um að ef hann ætlar sér að útbúa auka íbúð sé það ekki í samræmi við samþykktar teikningar né deiluskipulag.
 
** Opið hús fimmtudaginn 24. september frá kl. 17:00 til 17:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Nýtt og glæsilegt – Fullbúið - 231 m2 endaraðhús á tveimur hæðum með bílskúr við Úugötu 20 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 231 m2, þar af er íbúðarhluti 197,6 m2 og innbyggður bílskúr 33,4 m2. Á jarðhæð er forstofa, bílskúr, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla. Á efri hæðinni eru 3 svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Svalir í suðurátt og bakgarður fyrir aftan hús. Eignin afhendist samkvæmt skilalýsingu seljanda fullbúið á byggingarstigi B4. Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning. Glæsilegar innréttingar frá HTH, vönduð gólfefni frá Planka og tæki frá Ormsson. Innbyggður ísskápur og frystiskápur ásamt innbyggðri uppþvottavél. Lóð frágengin með steyptu bílaplani.

Frábært fjölskylduhús á vinsælum stað, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.
Húsið er hannað með það í huga að það væri auðvelt að útbúa ósamþykkta auka íbúð á jarðhæð þar sem það eru tveir inngangar á jarðhæð.


Verð kr. 159.900.000,-

Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent strax


Skilalýsing er eftirfarandi:
Utanhúss: Raðhús á tveimur hæðum með bílskúr byggt úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni.
Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu sem er málluð og timburklætt að hluta.
Þak er Filigran þak með ásteypulagi og bræddum tjörupappa, xpx einangrun og fargi. Viðsnúið þak.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré inngangshurðar/svalahurðar og koksgrá bílskúrshurð.
Lóð er þökulögð og bílaplön steypt og vélslípuð með snjóbræðslulögnun sem komnar eru inn í bílskúr en ótengdar. Sorptunnuskýli fyrir 3 tunnur eru á hverri lóð skv teikningu.

Innanhúss:
Gólf eru steypt, röraslödduð og flotuð og skilast með vinyl parketi frá Planka ehf á gólfum og flísum á votrýmum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir. Bílskúrsgólf eru máluð.
Innveggir: Uppsettir samkvæmt teikningu, léttir innveggir eru hlaðnir úr Lemga hleðslusteinum, sparslaðir, grunnaðir og málaðir. Veggir á baðherbergium, þvottahúsi og
bílskúr eru málaðir með sveppa og mygluvarnar málningu. Litur NCS-0500N
Loft: eru steynsteypt fíligran loft spörsluð, grunnuð og máluð. Litur NCS 0500N
Innréttingar eru frá HTH með viðar áferð í eldhúsi, böðum og andyrir en hvítum skápum í svefnherbergjum og þvottahúsi. Eldhústæki eru AEG. Innihurðir eru hvítar frá Birgisson
Rafmagn: Inntak og rafmagnstafla uppsett og tengd. Rafmagn dregið í, tenglar og rofar frágengið Raflagnaefni Gira og Heimilistæki eru AEG frá Ormsson
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt. Gólfhitakerfi tengt og frágengið. Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi og afhendist án þráðlausra hitastýringa. Hámkarkshiti á heitu vatni er 60°C. Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin. Pípur fyrir raf- og boðlagnir eru miðaðar við samþykktar skipulagsteikningar. Heimtaugar rafmagns og boðtauga skulu tengdar og frágengnar. Hreinlætistæki eru frá Grohe og Tece.

Annað: Eignin afhendist fullbúinn samkvæmt byggingarstig B4. Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd. Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat. Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda. Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
33.4 m2
Fasteignanúmer
2524795
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureitur - D2-705
Heitur pottur
Orkureitur - D2-705
108 Reykjavík
226.5 m2
Fjölbýlishús
322
1400 þ.kr./m2
317.200.000 kr.
Skoða eignina Dverghamrar 3
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Dverghamrar 3
Dverghamrar 3
112 Reykjavík
212 m2
Einbýlishús
413
800 þ.kr./m2
169.700.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
78.1 m2
Fjölbýlishús
32
959 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 19
Opið hús:27. sept. kl 14:00-14:20
Skoða eignina Hraungata 19
Hraungata 19
210 Garðabær
66 m2
Fjölbýlishús
21
983 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin