Fasteignaleitin
Skráð 11. júlí 2026

Myrkholt

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-806
390,677 m2
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
210.000.000 kr.
Fermetraverð
538 kr./m2
Fasteignamat
1.520.000 kr.
Brunabótamat
225.150.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2204849
Landnúmer
167133
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer hæðar
Númer íbúðar
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að mestu
Þak
þakjárn endurnýjað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Ragmagnskynding
Inngangur
Margir inngangar
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynnir með stolti jörðina Myrkholt í Bláskógabyggð í uppsveitum Árnessýslu.
Jörðin er einstaklega vel staðsett með vönduðu íbúðarhúsi, útihúsum og fjölbreyttum möguleikum fyrir hestamennsku, búrekstur eða ferðaþjónustu.  Jörðin er um 29 hektarar.
Jörðin nýtur einstakrar staðsetningar þar sem stutt er í Gullfoss, Geysi og aðra vinsæla áfangastaði Gullna hringsins. Þessi staðsetning býður upp á mikla möguleika fyrir ferðaþjónustu, hestatengda starfsemi, verslun eða aðra þjónustu við ferðamenn.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing,
Íbúðarhúsið var byggt árið 1934, en var stækkað með viðbyggingu árið 2021. Birt stærð hússins er 187,2 m².
Gengið er inn í rúmgóða tvöfalda forstofu en hægt er að ganga inní húsið um tvo innganga.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað og er með góðu skápaplássi, rúmgóðri eyju og góðri vinnuaðstöðu. Inn af eldhúsinu er búr.
Stofan er björt og opin við eldhúsið og nýtur fallegs útsýnis yfir sveitina.
Á aðalhæðinni er rúmgott hjónaherbergi ásamt fallegu baðherbergi með góðri walk-in sturtu. Baðherbergið var endurnýjað samhliða stækkun hússins árið 2021.
Í risi er notalegt alrými sem nýtist vel sem sjónvarpshol eða setustofa ásamt einu herbergi sem hentar vel sem svefnherbergi eða skrifstofa.
Í kjallara er gott þvottahús, rúmgott svefnherbergi og góð geymsla. Þaðan er jafnframt útgengi út á baklóð.
Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald á undanförnum árum. Skipt var um nær alla glugga árið 2010 (að tveimur undanskildum), eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð og sett nýtt járn á þakið árið 2017.

Útihúsið er 489,8 m², vel skipulagt og byggt með fjölbreytta nýtingu í huga.
Í húsinu er hesthús með 14 rúmgóðum eins hesta stíum, fjárhús með haughúsi undir, tvö salerni, góð kaffistofa sem jafnframt getur nýst sem starfsmannaaðstaða, auk rúmgóðrar reiðtygjageymslu og verkstæðis.
Samkvæmt teikningum er hesthúsið upphaflega stærra, en hluta þess hefur verið breytt í verkstæði og geymslurými. Við húsið er gott hestagerði

Í húsinu hefur áður verið rekin gestamóttaka fyrir ferðamenn ásamt verslun með íslenskar ullarvörur. Það undirstrikar vel þá möguleika sem eignin býður upp á, enda er staðsetning jarðarinnar afar hagstæð fyrir ferðaþjónustu, með góðu aðgengi allt árið um kring og stutt í helstu ferðamannastaði Suðurlands, svo sem Gullfoss, Geysi og fleiri vinsæla áfangastaði.

Myrkholt er einstaklega vel staðsett jörð þar sem sameinast fallegt og vel viðhaldið íbúðarhús, vönduð útihús og fjölbreyttir nýtingarmöguleikar.
Staðsetningin, aðeins um 10 mínútna akstur frá Gullfossi og Geysi, gerir eignina sérstaklega áhugaverða fyrir þá sem vilja sameina heimili, hestamennsku og ferðaþjónustu á einum stað.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1934
187.2 m2
Fasteignanúmer
2204849
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
35.150.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
35.150.000 kr.
Brunabótamat
81.750.000 kr.
Byggt 1998
489.8 m2
Fasteignanúmer
2204849
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
39.700.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
39.700.000 kr.
Brunabótamat
143.400.000 kr.

Myndir (67)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þverholtsvegur (6-8-10-12-16)
Þverholtsvegur (6-8-10-12-16)
805 Selfoss
90,804.8 m2
Jörð/Lóð
312
0 þ.kr./m2
42.900.000 kr.
Skoða eignina Skagamýri 10
Skoða eignina Skagamýri 10
Skagamýri 10
805 Selfoss
Jörð/Lóð
18.000.000 kr.
Skoða eignina Kvennagönguhólar 22
Kvennagönguhólar 22
805 Selfoss
Jörð/Lóð
Fasteignamat 3.200.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Tildra lóðir
Skoða eignina Tildra lóðir
Tildra lóðir
801 Selfoss
Jörð/Lóð
6.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin