Fasteignaleitin
Skráð 25. júní 2026

Elsugata 15

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
97.9 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
693.565 kr./m2
Fasteignamat
49.300.000 kr.
Mynd af Gunnar Patrik Sigurðsson
Gunnar Patrik Sigurðsson
Fasteignasali
Byggt 2025
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2532151
Landnúmer
235997
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir fallegt og vel skipulagt 3-4 herbergja raðhús við Elsugötu 15 í Þorlákshöfn, alls 97,9 fm samkvæmt HMS.
Allar upplýsingar veitir Gunnar Patrik Löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða netfang gunnar@fstorg.is


Eignin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, geymslu/svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og rúmgott alrými með stofu og eldhúsi.

Bjart og opið alrýmið er hjarta heimilisins, alls 40,2 fm að stærð, með fallegri eldhúsinnréttingu, stórri eyju og góðu plássi fyrir setu- og borðstofu. Í eldhúsinu er innbyggður ísskápur, uppþvottavél, bakaraofn og helluborð. Stórir gluggar veita rýminu mikla birtu. Gólfhiti er í allri eigninni og flísar eru á votrýmum. Húsið skilast með gólfefnum.

herbergin eru þrjú, þar af hjónaherbergi 12,1 fm og tvö herbergi 9,8 fm hvort. Baðherbergið er flísalagt með sturtu og fallegri innréttingu. Sér þvottahús er innan eignar.

*Flísar á gólfi frá Álfaborg og parket og hurðar frá Parka*

Þorlákshöfn er ört vaxandi og fjölskylduvænt samfélag þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttamannvirki, verslanir og aðra þjónustu. Eignin er staðsett á rólegum og eftirsóttum stað þar sem stutt er í falleg útivistarsvæði og alla helstu þjónustu.

Allar upplýsingar veitir Gunnar Patrik Löggiltur fasteignasali í síma 822-9415 eða netfang gunnar@fstorg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/05/202532.100.000 kr.33.950.000 kr.97.9 m2346.782 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 12
Efsta hæð
Skoða eignina Hnjúkamói 12
Hnjúkamói 12
815 Þorlákshöfn
80,5 m2
Fjölbýlishús
312
682 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Klettamói 9
Skoða eignina Klettamói 9
Klettamói 9
815 Þorlákshöfn
81,9 m2
Fjölbýlishús
312
707 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Fríðugata 3
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Fríðugata 3
Fríðugata 3
815 Þorlákshöfn
150,4 m2
Parhús
413
650 þ.kr./m2
97.800.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 2 íb. 307
Bílastæði
Apalskarð 2 íb. 307
221 Hafnarfjörður
95,7 m2
Fjölbýlishús
312
758 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin