Miklaborg kynnir: Fallegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í botnlanga götu, með útsýni á besta stað í Kópavogi. Húsið er klætt að utan og allt umhverfi þess hið fallegasta. Bílastæði fyrir fjóra til fimm bíla á lóð.
Skipting eignar skv HMS: Íbúðarrými 235 fm og bílskúr 31 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing
Neðri hæð:
Forstofa er flísalögð með góðum fataskápum.
Hol tengir saman öll rými neðri hæðar, næturlýsing og innfelld ljós í lofti.
Þrjú svefnherbergi eru á neðri hæð með fataskápum.
Baðherbergið er rúmgott og bjart, flísar á gólfi og veggjum, sturta, baðkar, falleg innrétting og innbyggðu salerni.
Þvottahús er með innréttingu á einum vegg, bæði efri og neðri skápar ásamt skolvaski. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er útgengt er út á baklóð.
Þvottahúsið er flísalagt með stórri innréttingu
Geymsla inn af þvottahúsi.
Efri hæð:
Stofan og borðstofan liggja saman í björtu rúmgóðu alrými þar sem hátt er til lofts og gólfsíðir gluggar með útsýni til sjávar. Innfelld ljós í loftum og parket á gólfi.
Rennihurð út á svalir sem snúa til suðurs með einstöku útsýni.Í eldhúsi er ljós innrétting ásamt eyju með steinplötum á borðum. Í eldhúsi er helluborð með innfelldri viftu, undir límdur eldhúsvaskur, innbyggður tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél. Tveir bakarofnar í eldhúsi eru í vinnuhæð. Gott vinnu- og skápapláss. Gólfsíðir gluggar gefa fallega birtu og gott útsýni. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með sturtu og innbyggðu salerni.
Sjónvarpsherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Í kjallara er rúmgott geymslurými þar sem gólfhitastýringin er og inntök.
Hellulögð og snyrtileg aðkoma með hita í plani við bílskúr. Stór og skjólgóður viðarpallur með girðingu er fremst á lóð til suðurs.
Bílskúrinn er 31 fm með flísalagt gólf, innréttingu og sjálfvirkum hurðaopnara. Lóðin virkilega snyrtileg og falleg.
Staðsetning
Eignin er frábærlega vel staðsett í suðurhlíðum Kársness í Kópavogi, beint fyrir neðan Rútstún og Kópavogslaug, leikskóli er á næstu lóð og barnaskóli Kársness í hverfinu. Stutt í göngustíga við sjávarsíðuna.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 266,2 | 199 | ||
108 | 254,4 | 199,9 | ||
200 | 232,2 | 189,8 | ||
221 | 268,9 | Tilboð | ||
108 | 51,7 | 53,9 | ||
230 | 101,8 | 68,5 |